01.04.2020

Út­greiðsl­ur á fyrir­fram­greidd­um viðbótar­lífeyris­sparnaði

Til að útgreiðsla fyrirframgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar geti átt sér stað þann 30. apríl næstkomandi þarf umsókn að hafa borist Frjálsa í síðasta lagi 26. apríl. Frá og með 15. maí munu greiðslur fara fram 15. hvers mánaðar og þarf umsókn að berast eigi síðar en fimm virkum dögum fyrir útgreiðsludag.

Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér úrræðið vel, t.d. í spurt og svarað á vefsíðu Frjálsa lífeyrissjóðsins áður en sótt er um. Þá eru þeir sem ekki eru nú þegar með rafræn skilríki hvattir til að verða sér úti um þau.

Opnað verður fyrir rafrænar umsóknir á Mínum síðum á næstunni og verður upplýst um það þegar þar að kemur hér á síðunni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira