Samkomulag um séreign – á ykkar forsendum
Hjón og sambúðaraðilar geta samið um skiptingu séreignar.

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.
Hjón og sambúðaraðilar geta samið um skiptingu séreignar.

Hjónum og sambúðaraðilum, bæði núverandi og fyrrverandi, er heimilt en ekki skylt að gera samninga sín á milli um skiptingu séreignar í Frjálsa, óski þau þess. Skiptingin gildir um frjálsa séreign viðbótar- og skyldulífeyrissparnaðar, auk erfðaséreignar ef við á. Skipting getur að hámarki verið 50% en ekki er gerð krafa um gagnkvæma og jafna skiptingu. Fyrir þá sem vilja kynna sér stöðu sína í Frjálsa þá er einfalt að gera það í Arion appinu og á Mínum síðum Frjálsa.
Sækja má um hvenær sem er, aldur og heilsufar skipta ekki máli. Skipting helst óbreytt komi til skilnaðar eða sambúðarslita.
Algengar ástæður skiptingar séreignar:
Sem hluti af uppgjöri vegna skilnaðar en heimilt við öll tækifæri.
Getur stuðlað að skattahagræði þ.e. leitt til lækkunar tekjuskatts vegna betri nýtingar skattþrepa beggja aðila.
Séreign erfist til blóðskyldra og ættleiddra barna. Ef um stjúpbörn er að ræða getur skipting séreignar haft áhrif á skiptingu erfðaséreignar til barna.
Séreign erfist aðeins til hjúskaparmaka en hægt er að skipta uppsafnaðri séreign hvort sem aðilar eru hjón eða í sambúð.
Ef aðilar eru yngri en 60 ára er mikilvægt að kynna sér útgreiðslureglur því um þá séreign sem maki fær vegna skipta, gilda útgreiðslureglur vegna aldurs þ.e. laust frá 60 ára aldri. Um þá séreign sem erfist gilda útgreiðslureglur erfðaséreignar þ.e. laust frá andláti, óháð aldri.
Mikilvægt er að aðilar átti sig á áhrifum skiptingar á útgreiðslur og erfanleika áður en skipting er gerð og taki upplýsta ákvörðun.
Hverju er skipt? | Frjálsri séreign og erfðaséreign, ef við á. |
Hlutfall skiptingar | Að hámarki 50%. |
Hvernig skipting | Ekki er gerð krafa um gagnkvæma og jafna skiptingu. |
Hvaða tímabil? | Ekki er horft á tímabil, skipting á við um alla uppsafnaða séreign nema annað sé tekið fram. |
Hvenær sótt um? | Hvenær sem er. |
Hvar sótt um? | Í þeim sjóði sem á að skipta. |
Hvaða eyðublöð/fylgigögn? | Samkomulag um skiptingu frjálsrar séreignar. Hjúskaparvottorð/sambúðarvottorð/hjónavígsluvottorð. |
Er hægt að segja upp? | Nei, ekki hægt að segja upp né láta ganga til baka með afturvirkum hætti. |
Hvað gerist við skilnað? | Skipting helst óbreytt nema aðilar geri samkomulag um annað og framvísi til sjóðsins. |
Hvað gerist við andlát? | Samningur heldur gildi sínu þ.e. skipting helst óbreytt. Séreign á nafni hins látna erfist 2/3 til maka og 1/3 til barna. |
Er hagkvæmt að gera samning um skiptingu? | Matsatriði samningsaðila, skoða erfðir, skatta o.fl. |