Erlendir ríkisborgarar
Endurgreiðsla iðgjalda til ríkisborgara utan samningsríkja við brottflutning frá Íslandi.

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.
Endurgreiðsla iðgjalda til ríkisborgara utan samningsríkja við brottflutning frá Íslandi.

Erlendir ríkisborgarar geta, skv. 4. mgr. 19. gr. laga nr. 129/1997, sótt um endurgreiðslu iðgjalda við brottflutning frá Íslandi að því gefnu að það sé ekki bannað skv. milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að. Ísland er nú þegar með milliríkjasamninga við yfir þrjátíu ríki sem hér verða nefnd samningsríki þ.e. Bandaríkin, Bretland, Færeyjar, Kanada og EES ríkin, auk Sviss þ.e. öll EFTA- og ESB ríkin.
Ísland, Noregur og Liechtenstein. Einnig Sviss vegna aðildar sinnar að Vadus samningi EFTA ríkjanna.
Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ítalía, Króatía, Kýpur (gríski hlutinn), Lettland, Litháen, Lúxemborg, Malta, Portúgal, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Tékkland. Ungverjaland, Þýskaland.
Ekki er heimilt að endurgreiða honum lífeyrissparnað sinn vegna brottflutnings frá Íslandi. Ef um tvöfalt ríkisfang er að ræða er ekki heimild til endurgreiðslu ef annað er innan samningsríkis. Ríkisföngin þyrftu bæði að vera utan samningsríkja til að endurgreiðsla sé heimil. Sótt er um í gegnum systurstofnun Tryggingastofnunar í búsetulandi þegar að útgreiðslu kemur.
Heimilt er að endurgreiða honum skyldu- og viðbótarlífeyrissparnað sinn vegna brottflutnings frá Íslandi. Framlag sjóðfélaga og launagreiðanda í samtryggingu er endurgreitt með verðbótum, en án vaxta en framlag sjóðfélaga og launagreiðanda í séreign er greitt með ávöxtun. Greiddur er tekjuskattur við útgreiðslu. Ef sjóðfélagi hefur öðlast svokallaðan rétt á framreikningi örorku (venjulega eftir 3 ár) getur endurgreiðsluhlutfallið lækkað.