Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.
Umsækjendur þurfa að eiga séreign eða réttindi í Frjálsa lífeyrissjóðnum sem myndast hafa með greiðslu þeirra á lágmarksiðgjaldi eða viðbótariðgjaldi af launum eða öðru endurgjaldi þeirra fyrir hvers konar vinnu, starf eða þjónustu í sjóðinn, sbr. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Jafnframt þurfa umsækjendur að uppfylla annað af eftirfarandi tveimur skilyrðum:
• Hafa greitt iðgjöld í sjóðinn vegna síðustu sex mánaða.
• Hafa greitt iðgjöld til sjóðsins vegna samtals 36 mánaða.
Lántakendur hjá sjóðnum sem uppfylla ekki ofangreind skilyrði hafa rétt til að endurfjármagna lán sín við sjóðinn sbr. 11. gr. reglna þessa.
Lántakendur geta valið um jafngreiðslulán (annuitet) eða lán með jöfnum afborgunum.
Lántakendum stendur til boða þrjú lánsform eða blöndu af þeim:
• verðtryggð lán með vöxtum sem eru breytilegir,
• verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann og
• óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára í senn.
Verðtryggð lán – breytilegir vextir
Breytilegir vextir verðtryggðra lána sjóðsins eru endurskoðaðir af stjórn sjóðsins á þriggja mánaða fresti, þann 15. febrúar, 15. maí, 15. ágúst og 15. nóvember. Tilkynnt er um vaxtabreytingar a.m.k. einum mánuði fyrir gildistöku, þ.e. 15. janúar, 15. apríl, 15. júlí og 15. október. Ný lán sem eru greidd út eftir tilkynningu um vaxtabreytingar á vef sjóðsins skulu bera hina breyttu vexti. Stjórn áskilur sér rétt til að breyta vöxtum með skemmri fyrirvara, að því marki sem slíkar breytingar leiða af þáttum sem sjóðurinn hefur ekki stjórn á.
Við ákvarðanir á breytilegum vöxtum sjóðsins er tekið mið af meðalávöxtunarkröfu verðtryggðra skuldabréfa útgefinna m.a. af Íbúðalánasjóði, bönkum og fjármálastofnunum á Íslandi, ríkissjóði Íslands eða sveitarfélögum síðustu þrjá almanaksmánuði, að viðbættri álagningu sjóðsins vegna útlánaáhættu og rekstrarkostnaði í tengslum við lánveitingar sjóðsins. Stjórn áskilur sér jafnframt rétt til að líta til vaxta sem Seðlabanki Íslands ákveður og birtir á vefsíðu sinni, og breytinga á ávöxtunarkröfu á ríkisskuldabréfum á markaði. Gildandi vextir eru birtir á vefsíðu sjóðsins.
Verðtryggð lán – fastir vextir
Fastir vextir verðtryggðra lána eru ákvarðaðir af stjórn sjóðsins. Fastir vextir taka ekki breytingum á lánstíma. Gildandi vextir á nýjum lánum eru birtir á vefsíðu sjóðsins.
Óverðtryggð lán
Óverðtryggðir vextir lána eru ákvarðaðir af stjórn sjóðsins og eru þeir fastir til þriggja ára í senn. Að þeim tíma liðnum á lántaki rétt á að fá eftirstöðvum skuldarinnar breytt í annað lánsform hjá sjóðnum á sambærilegum kjörum og sjóðurinn býður á þeim tíma miðað við sambærilegar tryggingar, enda sé lánið í skilum og tryggingar þess en fullnægjandi að mati sjóðsins. Lántaki skal óska eftir breytingu samkvæmt þessu með a.m.k. 15 daga fyrirvara og skal breytingin vera honum að kostnaðarlausu. Gildandi vextir á nýjum lánum eru birtir á vefsíðu sjóðsins.
Verði skuldaraskipti á láninu og nýr skuldari er ekki sjóðfélagi hækka vextir lánsins um 1,0 prósentustig.
Lágmarksfjárhæð láns er 1 milljón kr. Hámarksfjárhæð láns til einstaklings, hjóna eða sambúðarmaka er 70 milljónir kr. samanlagt. Aldrei skal heildarlánsupphæð vera hærri en svo að ný lán að viðbættum eftirstöðvum eldri lána frá lífeyrissjóðnum, uppreiknuðum með verðbótum, sé hærri en hámarksfjárhæð skv. ofangreindu.
Lánstími er 5-40 ár. Gjalddagar eru 2-12 á ári. Lántakendur greiða kostnað af greiðslu afborgana skv. verðskrá Frjálsa lífeyrissjóðsins.
Lánin eru uppgreiðanleg án kostnaðar hvenær sem er á lánstímanum.
Aðeins er lánað gegn veði í íbúðarhúsnæði í eigu skuldara eða íbúðarhúsnæði sem skuldari eignast samkvæmt þinglýstum kaupsamningi. Ef íbúðarhúsnæði sem setja á til veðtryggingar láninu er jafnframt að hluta eða að öllu leyti í eigu maka sjóðfélaga eða sambúðarmaka, er áskilið að viðkomandi eigandi verði meðlántaki (samskuldari) að umbeðnu láni. Meðlántaki þarf ekki að uppfylla skilyrði 1. gr., en þarf hins vegar að vera maki eða sambúðarmaki sjóðfélaga. Aðrir en maki sjóðfélaga eða sambúðarmaki geta ekki orðið meðlántakar.
Veðsetning í íbúðarhúsnæði getur að hámarki verið 70% af kaupverði en í sérstökum tilfellum áskilur sjóðurinn sér þó rétt til að miða við fasteignamat frá Fasteignamati ríkisins og/eða verðmat löggilts fasteignasala.
Veðsetning í íbúðarhúsnæði getur að hámarki verið 70% af fasteignamati þegar lánað er í öðrum tilgangi en að fjármagna kaup eða byggingu á íbúðarhúsnæði. Í sérstökum tilfellum áskilur sjóðurinn sér þó rétt til að miða við verðmat löggilts fasteignasala.
Lífeyrissjóðurinn áskilur sér rétt til að tilnefna löggiltan fasteignasala til að framkvæma verðmat. Verðmatið er á kostnað lántaka en sjóðurinn getur ætíð lagt sjálfstætt mat á forsendur verðmats.
Gerð er krafa um að lánum sjóðsins sé þinglýst fremst í veðbók viðkomandi fasteignar.
Ekki er lánað gegn veði í ósamþykktu húsnæði, þ.e. krafa er að veðið sé íbúð sem fellur undir byggingarreglugerð sem íbúðarhúsnæði. Að jafnaði eru ekki veitt lán til lántaka með veði í fleiri en tveimur fasteignum. Veðsetning fullfrágenginna eigna má aldrei vera hærri en 100% af brunabótamati og lóðarmati.
Heimilt er að lána til byggingar íbúðarhúsnæðis en þá að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram koma í 9. gr. reglna þessara. Húseignir í smíðum þurfa að vera komnar með fokheldisvottorð (byggingarstig 2) og smíðatryggingu til að vera tækar til veðtöku.
Við endurfjármögnun eldri lána Frjálsa lífeyrissjóðsins er ekki gerð krafa um færslu veðréttar fremst í veðbók, sbr. 9. gr. eða skilyrði um greiðslu iðgjalda sbr. 1. gr. Ef nýtt lán sjóðsins færist ekki framar í veðröð við endurfjármögnun skal það haldast á þeim veðrétti sem þau eldri voru á. Þrátt fyrir ákvæði um hámarksfjárhæð í 5. gr. reglna þessa er heimilt að endurfjármagna þá fjárhæð sem nemur allt að eftirstöðvum eldra láns sjóðsins sem á að greiða upp. Að öðru leyti gilda sömu reglur og gilda um nýjar lánveitingar skv. reglum þessum.
Með umsókninni þurfa að fylgja þær upplýsingar og þau gögn sem farið er fram á í lánsumsókn sjóðsins. Sjóðurinn greiðslumetur umsækjendur og metur lánshæfi þeirra í samræmi við lög um fasteignlán til neytenda nr. 118/2016 ásamt tilheyrandi reglugerð. Umsækjandi skal útvega sjóðnum öll fylgigögn vegna greiðslumats og heimilar sjóðnum að leita eftir fjárhagsupplýsingum frá Creditinfo. Lántakandi greiðir kostnað við lánshæfismat og greiðslumat. Komi í ljós að lánshæfi sé ábótavant eða skuldastaða sé með þeim hætti að vafi leiki á greiðsluhæfi lántakanda getur sjóðurinn lækkað umbeðna lánsfjárhæð eða hafnað lánveitingu.
Lántökugjald og annar kostnaður við lántöku og skilmálabreytingar er skv. verðskrá Frjálsa lífeyrissjóðsins.
Þrátt fyrir ofangreindar lánareglur áskilur Frjálsi lífeyrissjóðurinn sér rétt til að hafna lánsbeiðnum.
Samþykkt á stjórnarfundi Frjálsa lífeyrissjóðsins 18. maí 2026. Reglur þessar koma í stað eldri lánareglna og gilda um ný lán frá og með næsta virka degi sem og þegar veitt lán eftir því sem við á.