Mínar síður
Lífeyrissparnaður
SkyldulífeyrissparnaðurViðbótarlífeyrissparnaðurTilgreind séreignSkipting ellilífeyrisSkipting séreignarFjárfestingarleiðir
Útgreiðslur
EftirlaunÖrorkulífeyrirMakalífeyrirBarnalífeyrirErlendir ríkisborgarar
Rekstur sjóðsins
LykilupplýsingarÁvöxtunEignasamsetningÁrsfundargögnÁrsreikningarVerðskrá Frjálsa

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.

Lán
Lán til sjóðfélagaLánareglurVaxtaþróunVerðskráBreytingar á láni
Þjónusta við sjóðfélaga
RáðgjöfArion appiðNýliðarUmsóknirAlgengar spurningar
Launagreiðendur
Greiðsla iðgjaldaSjálfstætt starfandiSkuldleysisvottorð

Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.

Starfsemi
Saga FrjálsaStjórnÁbyrgar fjárfestingarSamningur um rekstur og eignastýringu
Regluverk
SamþykktirReglur og stefnurPersónuverndFyrirvararVefkökur
Útgefið efni
FréttirGreinarSkýrslurEfni birt í fjölmiðlum

Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.

Viltu gerast sjóðfélagi?

Það tekur örstutta stund að ganga frá umsókn

Sækja um viðbótarlífeyrissparnaðSækja um skyldulífeyrissparnað
Þjónusta

Símatími alla virka daga
milli klukkan 10-12 og 13-15
+354 444 6090
frjalsi@frjalsi.is

Styttu þér leið
LánRáðgjöfSkyldulífeyrissparnaðurViðbótarsparnaðurLaunagreiðendur
Útgreiðslur
EftirlaunÖrorkulífeyrirMakalífeyrirBarnalífeyrir
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedin

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

Borgartúni 19, 105 Reykjavík |

Kennitala 600978-0129 |

frjalsi@frjalsi.is

FyrirvararStillingar fótspora
  1. Lífeyrissparnaður
  2. ▸
  3. Yfirlit lífeyrissparnaðar
  4. ▸
  5. Tilgreind séreign

Til­greind sér­eign

Tilgreind séreign er sérstök tegund lífeyrissparnaðar innan skyldulífeyriskerfisins á Íslandi.

Kona í brúnni peysu

Hverj­ir eru kost­irnir?

  • Tilgreinda séreign má nýta við fjármögnun fyrstu íbúðar og sem greiðslur inn á lán*

  • Erfist eins og aðrar séreignartegundir

  • Eykur sveigjanleika við útgreiðslur

  • Er laus til útgreiðslu skv. ákveðnum reglum frá 62 ára aldri og vegna örorku

*Samningur um viðbótarlífeyrissparnað þarf að vera til staðar. Hjá Frjálsa gerist það sjálfkrafa ef þú ert með virka umsókn inn á skattur.is og tilgreinir Frjálsa sem sjóð

Gott er að hafa í huga að með því að greiða í tilgreinda séreign og byggja þannig um erfanlegan séreignarsparnað fer minna í samtryggingu og greiðslur eftirlauna, örorkulífeyris og makalífeyris úr henni verða lægri.

Ertu með þinn skyldu­lífeyris­sparnað hjá Frjálsa?

Ef þú ert með þinn skyldulífeyrissparnað hjá Frjálsa þá ertu nú þegar að ráðstafa stórum hluta iðgjalds í frjálsa séreign, meira en 3,5%. Þú þarft því ekkert að aðhafast.

  • Frjáls séreign erfist eins og aðrar séreignartegundir

  • Frjáls séreign eykur sveigjanleika við útgreiðslu og er laus til útgreiðslu frá 60 ára aldri

  • Hægt er að óska eftir útgreiðslu frjálsrar séreignar vegna örorku

Hús - Byggingar
Tilgreind séreign

Er sniðugt að vera með tilgreinda séreign?

Mörgum starfandi einstaklingum er gert skylt að greiða í tiltekna lífeyrissjóði. Flestir þeirra eru samtryggingarsjóðir sem bjóða þó sínum sjóðfélögum að ráðstafa allt að 3,5% í tilgreinda séreign.

Ef þú gerir ekki samning um tilgreinda séreign fer allt iðgjaldið þitt í samtryggingu sem tryggir þér ævilöng eftirlaun, örorku-, maka- og barnalífeyri.

Sjá nánar í grein eftir Guðnýju Helgu Lárusdóttur, sérfræðing á mörkuðum hjá Arion banka.

Ég vil vera með tilgreinda séreign hjá Frjálsa

Þú gætir greitt í tilgreinda séreign hjá Frjálsa ef þú greiðir í einhvern af lífeyrissjóðunum sem listaðir eru hér.

Þú byrjar á að gera samning við Frjálsa. Síðan sendir þú þínum lífeyrissjóð tilkynningu í gegnum mínar síður og hann greiðir svo mánaðarlega iðgjaldið í tilgreinda séreign til Frjálsa .

Samningur um tilgreinda séreign

Mínar síður sjóðanna:

  • Birta

  • Festa

  • Gildi

  • Lífeyrissjóður Rangæinga

  • LSR – A deild

  • Lífeyrissjóður verzlunarmanna

  • Lífeyrissjóður Vestmannaeyja*

  • SL

  • Stapi

*Sjóðfélagar Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja þurfa ekki að láta sinn skyldulífeyrissjóð sérstaklega vita.