Örorkulífeyrir
Örorkulífeyrir tryggir afkomu þína verðir þú fyrir orkutapi. Ef sjúkdómur eða slys skerðir starfsgetu þína og veldur tekjumissi, getur þú átt rétt á örorkulífeyri.

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.
Örorkulífeyrir tryggir afkomu þína verðir þú fyrir orkutapi. Ef sjúkdómur eða slys skerðir starfsgetu þína og veldur tekjumissi, getur þú átt rétt á örorkulífeyri.

Hafir þú greitt lágmarksiðgjöld í lífeyrissjóð í a.m.k. 24 mánuði, ekki endilega 24 mánuði samfleytt og ekki endilega í sama sjóð allan tímann, getur þú átt rétt á örorkulífeyri sem nemur áunnum réttindum þínum.
Hafir þú greitt iðgjöld til lífeyrissjóðs í þrjú af síðustu fjórum árum og í að minnsta kosti sex mánuði af síðustu 12 getur þú, auk áunninna réttinda, átt rétt á framreiknuðum örorkulífeyri. Framreikningur felur í sér að reiknað er hvaða réttindi þú hefðir áunnið þér með áframhaldandi iðgjaldagreiðslum til 65 ára aldur.
Hafir þú orðið fyrir tekjutapi af völdum orkutaps vegna slysa eða veikinda.
Ef trúnaðarlæknir metur orkutap 50%* eða meira.
Hafi orkutap varað í 6 mánuði. Athugið að lífeyrir greiðist ekki vegna fyrstu þriggja mánaðanna eftir orkutap.
*Getur verið mismunandi eftir sjóðum
Kanna veikindarétt hjá vinnuveitanda
Kanna rétt til greiðslna úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga
Kanna rétt til greiðslna frá Sjúkratryggingum Íslands
Kanna rétt til greiðslna úr sjúkdóma- eða slysatryggingu
Vottorð til lífeyrissjóða má ekki vera eldra en 3ja mánaða.
Læknar/heilsugæsla senda vottorð gjarna beint með Signet Transfer og skrá þá nafn lífeyrissjóðs sem sótt er um hjá, sem móttakanda skjals. Einnig TR, þegar það á við.
Berist vottorð frá lækni skal umsækjandi áframsenda það á utgreidslur@arionbanki.is
Best er að sækja um hjá þeim sjóði sem síðast hefur móttekið iðgjöld þín, óháð dagsetningu orkutaps.
Til að draga úr líkum á launalausum tímabilum er best að sækja um tímanlega, áður en öðrum greiðslum lýkur, þó í fyrsta lagi 4-6 mánuðum eftir orkutap.
Afgreiðsla umsóknar getur fyrst hafist þegar vottorð berst og tekur allt að 4 mánuði.
Á þessum tímapunkti sækja flestir einnig um hjá TR, þar sem sumir fá sjúkra- og endurhæfingargreiðslur fyrst og síðar örorkulífeyri.
Umsókn er send á trúnaðarlækni sjóðsins og á aðra þá lífeyrissjóði sem þú átt örorkurétt í.
Trúnaðarlæknir metur hlutfall og upphaf orkutaps út frá vottorði.
Hann boðar þig í viðtal ef við á.
Eingreiðsla berst þ.e. afturvirk greiðsla vegna þeirra mánaða sem liðið hafa frá upphafi orkutaps.
Það er þó ekki greitt vegna fyrstu þriggja mánaða eftir orkutap og ekki lengra aftur en 2 ár* frá umsókn.
Í kjölfarið berast örorkulífeyrisgreiðslur mánaðarlega og eru lífeyrisréttindi verðtryggð.
Í úrskurði sjást áunnin réttindi á orkutapsdegi ásamt framreiknuðum réttindum, ef við á.

Þeim sem verða fyrir orkutapi er ráðlagt að kanna rétt sinn til greiðslna bæði frá TR og lífeyrissjóðum. Ágætt er að þekkja helsta muninn á TR og lífeyrissjóðum en viðmið og reglur TR og lífeyrissjóða eru ekki endilega eins.
Fyrirvari: ofangreint er skráð samkvæmt bestu vitund og í viðleitni til að varpa ljósi á helstu skref umsækjanda sem orðið hefur fyrir tekjutapi af völdum orkutaps. Vakin er athygli á að nánari upplýsingar fær umsækjandi hjá viðeigandi aðilum s.s. um veikindarétt hjá vinnuveitanda, um sjúkrasjóð hjá stéttarfélagi, um almannatryggingar hjá Tryggingastofnun, um skattamál hjá Skattinum og svo framvegis. Upplýsingar þessar geta tekið breytingum (útgáfa, maí 2026).
Hægt er að gera samning um skiptingu ellilífeyris með maka/sambúðaraðila og þarf sú skipting að vera gagnkvæm og jöfn. Um er að ræða þrennskonar skiptingu:
Skipting áunninna réttinda - samkomulag um að uppsöfnuð ellilífeyrisréttindi renni að hluta til að mynda sjálfstæð ellilífeyrisréttindi fyrir maka og skerðast þá réttindi sjóðfélaga sem því nemur.
Skipting framtíðarréttinda - samkomulag um að iðgjald sjóðfélaga renni að hluta til að mynda sjálfstæð réttindi fyrir maka/sambúðaraðila og hluta til að mynda sjálfstæð réttindi fyrir sjóðfélaga.
Skipting ellilífeyrisgreiðslna - samkomulag um að nú þegar hafnar ellilífeyrisgreiðslur renni að hluta til maka/sambúðaraðila og hluta til sjóðfélaga.
Ítarlegri upplýsingar um skiptingu ellilífeyris er að finna hér.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð um skiptingu ellilífeyrisréttinda má finna inn á vefsvæði Landssamtaka lífeyrissjóða.
Samtrygging er greidd út vegna aldurs, örorku og andláts sjóðfélaga. Í samtryggingu mynda iðgjöld ekki sjálfstæða erfanlega eign heldur veita þau ákveðin réttindi. Iðgjöldi fara í sameiginlegan sjóð. Sumir fá meira úr honum en þeir hafa lagt til, aðrir minna, svipað og tíðkast með aðrar tryggingar. Samtrygging tryggir eftirlaun, maka-, barna- og örorkulífeyri og eru réttindi til lífeyris óháð kyni, heilsufari, hjúskaparstöðu og fjölskyldustærð.
Til samanburðar er séreign að fullu erfanleg. Séreign getur verið frjáls séreign, bundin séreign og tilgreind séreign vegna skyldullífeyrissparnaðar og frjáls séreign vegna viðbótarlífeyrissparnaðar.
Til upplýsingaþ á tryggir bundin séreign sjóðfélögum Erfanlegu leiðarinnar eftirlaun fyrri hluta eftirlaunaáranna en samtrygging á seinni hluta eftirlaunaáranna.
Langflestir greiða í fleiri en einn lífeyrissjóð yfir starfsævina. Ástæðuna má rekja til þess að kjara- og ráðningarsamningar kveða oft á um í hvaða lífeyrissjóð skuli greiða og því er ekki alltaf frjálst val um lífeyrissjóð. Lífeyrisréttindi tapast ekki þó þau séu á víð og dreif en ekki er heimilt að flytja lífeyrisréttindi á milli lífeyrissjóða.
Lífeyrissjóðir á Íslandi hafa gert með sér samkomulag sem einfaldar umsóknarferlið til muna. Sjóðfélagi sækir um útgreiðslu lífeyris í einum lífeyrissjóði, þeim sjóði sem greitt var til síðast. Sá sjóður sendir umsókn og fylgigögn, ef við á, á aðra sjóði, svo að útgreiðslur hefjist úr þeim einnig, óski sjóðfélagi ekki eftir öðru.
Samkomulagið gildir um eftirlaun, maka-, barna- og örorkulífeyri en sjálfur þarf sjóðfélagi að sækja um séreign hjá öllum þeim sjóðum sem hann á séreign í.
Frjálsi áframsendir umsókn um eftirlaun úr Frjálsi leiðinni og Tryggingaleiðinni en ekki úr Erfanlegu leiðinni þar sem bundin séreign tryggir eftirlaun á fyrri hluta eftirlaunaára.
Dæmi 1: hjá þeim sem er með 0 kr. í aðrar tekjur skattleggst 1.400.000 kr. eingreiðsla svo:
Fyrstu 498.122 kr. skv. skattþrepi 1 um 31,49%.
Næstu 853.121 kr. skv. skattþrepi 2 um 37,99% þ.e. 498.123 kr. - 1.398.450 kr.
Síðustu 48.757 kr. skv. skattþrepi 3 um 46,29% þ.e. allt umfram 1.398.450 kr.
Dæmi 2: hjá þeim sem er með 300.000 kr. í aðrar tekjur skattleggst 1.400.000 kr. eingreiðsla svo:
Fyrstu 198.122 kr. skv. skattþrepi 1 um 31,49%.
Næstu 853.121 kr. skv. skattþrepi 2 um 37,99% þ.e.
498.123 kr. - 1.398.450 kr.
Síðustu 348.757 kr. skv. skattþrepi 3 um 46,29% þ.e. allt umfram
1.398.450 kr.
Sjóðnum er óheimilt að skattleggja meira en 498.122 kr. skv. skattþrepi 1 og 853.121 kr. skv. skattþrepi 2 í hverjum mánuði.
Skattleysismörk lífeyrisgreiðslna 2026: sá sem tekur út 230.206 kr. lífeyrisgreiðslu og nýtir 100% persónuafslátt greiðir 0 kr. í skatt og fær 230.206 kr. inn á reikning sinn.
Sá sem nýtir mánaðarlegan persónuafslátt sinn 100% vegna lífeyrisgreiðslna fær 72.492 kr. hærri lífeyrisgreiðslu inn á reikninginn sinn.
Heimilt er að nýta persónuafslátt maka. Einnig látins maka í allt að 9 mánuði frá andlátsmánuði.
Meira um skattamál á skatturinn.is
Viðmiðunarfjárhæð fyrir eingreiðslu séreignar breytist í hlutfalli við vísitölu neysluverðs í janúar ár hvert og er 1.918.732 kr. fyrir árið 2026. Fjárhæðin gildir um frjálsa séreign vegna örorku og bundna séreign vegna aldurs. Einnig um tilgreinda séreign vegna örorku og aldurs.
Það er frjálst að taka séreign út um leið og útgreiðslureglur leyfa, en almennt er ekki skattalega hagkvæmt að taka út séreign til þess eins að færa yfir á annað sparnaðarform. Ástæðan er sú að hvorki er greiddur fjármagnstekjuskattur af ávöxtun séreignar né erfðafjárskattur við fráfall. Auk þess er ekki hægt að ganga að séreign vegna fjárhagslegra skuldbindinga líkt og gildir um flestar aðrar eignir.
Það er hins vegar skynsamlegt að skoða hvort breyta ætti um fjárfestingarleið, þ.e. flytja séreignina í áhættuminni leið, ef við á.
Þó er um að gera að taka skerðanlega séreign út áður en greiðslur hefjast frá Tryggingastofnun, sumir kjósa jafnvel að lifa á skerðanlegri séreign um tíma áður en greiðslur frá TR hefjast.
Inneign getur hækkað/lækkað í samræmi við breytingu á gengi sjóðsins frá þeim degi sem sótt er um þar til útgreiðslur eiga sér stað.
Sé sjóðfélagi í Ævilínu flyst inneign hans í áhættuminnstu leiðina þ.e. í Frjálsa 3 þegar ein útgreiðsla hefur átt sér stað. Iðgjöld sem berast eftir að útgreiðsla er hafin, bókast í Frjálsa 3.
Þegar erfðaeign er flutt yfir á lífeyrissparnað erfingja er henni ráðstafað í Ævilínu samkvæmt aldri erfingja, nema erfingi hafi átt inneign fyrir í annarri fjárfestingarleið, þá er erfðaeign flutt í þá fjárfestingarleið. Í tilfellum Ævilínu, flyst inneign hans í áhættuminnstu leiðina, þ.e. Frjálsa 3, þegar ein útgreiðsla hefur átt sér stað.