Ertu sjálfstætt starfandi?
Sjálfstætt starfandi eða sjálfstæðir atvinnurekendur greiða líka skyldulífeyrissparnað í lífeyrissjóð og viðbótarlífeyrissparnað óski þeir þess.

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.
Sjálfstætt starfandi eða sjálfstæðir atvinnurekendur greiða líka skyldulífeyrissparnað í lífeyrissjóð og viðbótarlífeyrissparnað óski þeir þess.

Sem sjálfstætt starfandi greiðir þú að lágmarki 15,5% af launum þínum eða reiknuðu endurgjaldi í lífeyrissjóð. Þér er þó frjálst að greiða hærra framlag og þannig auka bæði lífeyrisréttindi þín og séreignarsparnað.
Þú mátt sjálf/ur velja þér lífeyrissjóð og því er mikilvægt að þú kynnir þér mismunandi uppbyggingu sjóða og hvernig réttindaávinnslu er háttað.
Hjá Frjálsa fer stór hluti skylduiðgjaldsins í séreign sem er erfanleg og veitir þér aukinn sveigjanleika við útgreiðslur.
Sjálfstætt starfandi og sjálfstæðir atvinnurekendur með fastar mánaðarlegar greiðslur geta nýtt sér kröfuáskrift en þó er mælt með notkun launagreiðendavefs
Óþarfi að senda inn skilagreinar
Krafa myndast sjálfkrafa í netbanka launagreiðanda
Mikilvægt að upplýsa Frjálsa um breytingar á launum/reiknuðu endurgjaldi
Til þess að skrá kröfuáskrift er sendur tölvupóstur á launagreidendur@frjalsi.is með upplýsingum um kennitölu greiðanda, kennitölu launþega, upphæð heildarlauna fyrir skatt og frá hvaða tímabili á að skrá föstu greiðslurnar/kröfuáskriftina
Ef stöðva á kröfuáskrift þarf að láta vita með tölvupósti

Skilvirkasta og þægilegasta leiðin fyrir fyrirtæki sem hafa ekki aðgang að launakerfi sem styður rafrænar skilagreinar. Kerfið býður upp á nýskráningu skilagreina, afritun eldri skilagreina og innsendingu textaskráa.
Krafa myndast sjálfkrafa í netbanka launagreiðanda og launagreiðendur geta einnig sjálfir sótt yfirlit yfir iðgjaldaskil - launagreiðendayfirlit.
Kennitala: 600978-0129
Reikningsnúmer: 329-26-7056
Skylduiðgjald: Lífeyrissjóðsnúmer 137
Viðbótariðgjald: Lífeyrissjóðsnúmer 135
IBAN: IS62 0329 2600 7056 6009 7801 29
SWIFT: ESJAISRE
Gjalddagi: 10. dagur næsta mánaðar eftir launatímabil
Eindagi: Síðasti virki dagur næsta mánaðar eftir launatímabil
Skilagrein þarf að fylgja greiðslu í lífeyrissjóð svo að ljóst sé hvernig bóka eigi greiðsluna þ.e. hve mikið er greitt fyrir hvern launþega og fyrir hvaða tímabil. Iðgjöld bera vexti frá og með þeim degi sem skilagrein berst, því er mikilvægt að skilagrein berist frá launagreiðanda samhliða greiðslu. Þegar um fastar mánaðarlegar greiðslur er að ræða, t.d. kröfuáskrift, þarf ekki að skila skilagrein.
Hægt er að velja um nokkrar leiðir til að greiða iðgjald og skila skilagreinum, sjá upplýsingar um skilagreinar og greiðslur. Sjálfstæðir atvinnurekendur eru hvattir til að vera með fastar mánaðarlegar greiðslur í formi kröfuáskriftar í netbanka sem er mjög skilvirk og þægileg leið. Skilagreinar eru óþarfar þar sem upplýst er um fastar mánaðarlegar greiðslur fram í tímann.
Þrátt fyrir að nýr samningur um viðbótarlífeyrissparnað ásamt uppsögn á samningi fyrri vörsluaðila hafi borist launagreiðanda, geta greiðslur í nýjan sjóð ekki hafist fyrr en fyrir liggur staðfest uppsögn frá fyrri vörsluaðila um að hann gefi frá sér samning, eða 2ja mánaða uppsagnarfrestur er liðinn.
Þegar skilagrein berst sjóðnum en engin greiðsla, þá er greiðanda sent greiðsluáskorunarbréf sem veitir 15 daga greiðslufrest á ógreidda skilagrein eftir eindaga. Krafa er mynduð ef hún er ekki þegar til staðar. Ef skilagrein er enn ógreidd 15 dögum eftir að greiðsluáskorun er send þá er hún send til frekari innheimtu til Motus.
Berist greiðsla of seint eru dráttarvextir reiknaðir frá gjalddaga til greiðsludags. Innborgun er tekin upp í. Á eftirstöðvar er stofnuð krafa og greiðsluáskorunarbréf er sent til greiðanda.
Hafi launagreiðandi aðeins greitt hluta af skylduiðgjöldum í lífeyrissjóð fyrir launþega síðasta iðgjaldaár, þá fær hann senda kröfu frá lífeyrissjóði að beiðni RSK, haustið á eftir.
Hafi launagreiðandi ekki greitt nein skylduiðgjöld í lífeyrissjóð fyrir launþega síðasta iðgjaldaár, þá fær launagreiðandi senda kröfu frá lífeyrissjóði að beiðni RSK, haustið á eftir. Hafi engin iðgjöld vegna tekjuársins verið greidd og sjóðfélagi auk þess ekki skráð lífeyrissjóð á skattframtal sitt, þá sendir SL lífeyrissjóður að öllum líkindum kröfuna. Launagreiðandi getur óskað eftir að greiða kröfuna til Frjálsa lífeyrissjóðsins ef launþegi er ekki skyldugur samkvæmt kjarasamningi að greiða í ákveðinn sjóð. Óskað er eftir yfirtöku með því að senda tölvupóst á launagreidendur@arionbanki.is. Frestur til að óska eftir yfirtöku er almennt mánuður frá fyrsta bréfi.