Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.
Örorkulífeyrir er greiddur hafi sjóðfélagi greitt í lífeyrissjóð í a.m.k. 2 ár, ekki endilega 2 ár samfleytt og ekki endilega í sama sjóðinn allan tímann.
Makalífeyrir er greiddur hafi sjóðfélagi látið eftir sig maka, greitt í lífeyrissjóð í a.m.k. 2 ár, ekki endilega 2 ár samfleytt og ekki endilega í sama sjóðinn allan tímann.
Barnalífeyrir er greiddur með hverju barni/kjörbarni/ættleiddu barni sjóðfélaga til 18 ára.
Endurgreiðsla iðgjalda til ríkisborgara utan samningsríkja við brottflutning frá Íslandi.