Hvað veist þú um lífeyrismál?
Lífeyrissjóður er í raun langtímasparnaður fyrir framtíðina. Þegar þú byrjar að vinna fara hluti af laununum þínum í lífeyrissjóð sem safnast upp yfir starfsævina.

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.
Lífeyrissjóður er í raun langtímasparnaður fyrir framtíðina. Þegar þú byrjar að vinna fara hluti af laununum þínum í lífeyrissjóð sem safnast upp yfir starfsævina.

Þó eftirlaunaárin séu kannski langt undan er lífeyrissparnaður ein mikilvægasta fjárhagslega ákvörðun sem þú tekur.
Með því að greiða í lífeyrissjóð byggir þú upp tekjur til framtíðar, en færð líka mikilvæga tryggingavernd á meðan þú ert á vinnumarkaði.
Ef þú missir starfsgetu vegna veikinda eða slyss getur lífeyrissjóðurinn veitt þér fjárhagslegan stuðning. Auk þess getur þú byggt upp séreignarsparnað sem nýtist síðar á lífsleiðinni.
Því fyrr sem þú byrjar að spara, því meiri tíma hefur sparnaðurinn til að vaxa og skila ávinningi.

Þú getur gert samning um viðbótarsparnað hjá Frjálsa. Með því færðu 2% launahækkun í formi mótframlags atvinnurekanda.
Viðbótarsparnaður er að fullu erfanlegur og hann er hægt að nýta skattfrjálst við fjármögnun húsnæðis.
Frjálsi leggur mikið upp úr góðri þjónustu við sína sjóðfélaga. Þú getur fylgst með lífeyrissparnaðinum hvenær sem er í Arion appinu og framkvæmt allar helstu aðgerðir.

Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign en séreign eykur sveigjanleika við útgreiðslur.
Hjá Frjálsa hefur þú val. Þú velur t.d. skyldulífeyrissparnaðarleið eftir því hvaða hlutfall samtryggingar og séreignar þú telur henta þér.
Lífeyrissparnaður er langtímasparnaður og ávöxtun Frjálsa til lengri tíma er góð.
Sjóðfélögum Frjálsa stendur til boða að taka lán með veð í íbúðahúsnæði.
Hjá Frjálsa getur þú ráðstafað meirihluta skyldulífeyrissparnaðar í erfanlega séreign sem erfist við fráfall.
Þú getur kosið í stjórn en í stjórn lífeyrissjóðsins eru einungis sjóðfélagar. Þín skoðun skiptir máli!
Þú velur þér fjárfestingarleið fyrir sparnaðinn eða ævilínu svo inneignin færist sjálfkrafa milli leiða eftir aldri og þannig er tekin minni áhætta eftir því sem við verðum eldri.
Réttindaávinnsla er aldurstengd en það þýðir að iðgjald sem greitt er á yngri árum veitir meiri réttindi en það sem greitt er síðar því það ávaxtast í lengri tíma.
Við fjárfestingarákvarðanir er áhersla lögð á ábyrgar fjárfestingar.
Frjálsa leiðin
Hámarks sveigjanleiki
44%
Frjáls séreign er laus til útborgunar frá 60 ára aldri og erfist að fullu.
56%
Samtrygging tryggir þér ellilífeyri frá 60 ára aldri til æviloka, ásamt rétti til örorku-, maka- og barnalífeyris.
Erfanlega leiðin
Hæsta hlutfall sem erfist
34%
Frjáls séreign er laus til útborgunar frá 60 ára aldri og erfist að fullu.
42%
Bundin séreign er laus til mánaðarlegrar útborgunar frá 60 ára aldri til 82 ára aldurs og erfist að fullu.
24%
Samtrygging tryggir þér ellilífeyri frá 82 ára aldri til æviloka, ásamt rétti til örorku-, maka- og barnalífeyris.
Allir starfandi á aldrinum 16 - 70 ára greiða í lífeyrissjóð samkvæmt lögum í landinu. Þannig eru okkur tryggð ævilöng eftirlaun á eftirlaunaárum og lífeyrisgreiðslur ef til áfalla kemur, s.s. örorku-, maka- og barnalífeyri.
Allir starfandi á aldrinum 16 - 70 ára greiða 4% af launum sínum í lífeyrissjóð og launagreiðandi greiðir 11,5% á móti. Yfirleitt sér launagreiðandi um að skila greiðslunum til lífeyrissjóðs svo launþegi þurfi ekki að hugsa fyrir því. Í ráðningar- og kjarasamningum kemur fram í hvaða lífeyrissjóð þú átt að greiða. Sumir geta valið sér lífeyrissjóð og ættu að vanda valið vel því uppbygging sjóða er misjöfn.
Iðgjald sem greitt er í lífeyrissjóð nemur að minnsta kosti 15,5% af launum og skiptist í 4% framlag launþega og 11,5% framlag launagreiðanda. Iðgjöld eru frádráttarbær frá skattskyldum tekjum sem þýðir að greiddir eru lægri skattar en annars hefði verið gert. Iðgjöldin eru sem sagt dregin frá launum áður en tekjuskatturinn er reiknaður. Hins vegar þegar lífeyrisgreiðslur úr lífeyrissjóðunum hefjast eru greiðslurnar skattlagðar eins og launatekjur. Lífeyrisgreiðslur ráðast af iðgjaldagreiðslum yfir starfsævina.
Samtrygging felur í sér að sjóðfélagar tryggja hver öðrum eftirlaun og áfallalífeyri vegna örorku og andláts. Þannig eru okkur tryggð ævilöng eftirlaun á eftirlaunaárum og lífeyrisgreiðslur ef til áfalla kemur, s.s. örorku-, maka-, barnalífeyri.
Áfallalífeyrir er samheiti yfir örorku-, maka-, barnalífeyri. Að ákveðnum skilyrðum uppfylltum getur sjóðfélagi fengið örorkulífeyri ef hann verður fyrir starfsorkumissi og barnalífeyri vegna örorku. Við andlát fær maki sjóðfélaga makalífeyri og börn hans barnalífeyri til 18 ára aldurs ef viss skilyrði eru uppfyllt. Það tekur þrjú ár að fá svokölluð framreiknuð réttindi en það eru réttindi sem hefðu áunnist hefði sjóðfélagi greitt áfram í sjóðinn.
Með því að greiða í lífeyrissjóð öðlumst við réttindi. Það eru réttindi til eftirlauna, örorku-, maka- og barnalífeyris. Hversu mikil réttindi þú færð er háð því hvað þú greiðir mikið í sjóðinn yfir starfsævina og hversu vel tekst að ávaxta sjóðinn yfir lengri tíma. Auk þess hafa lýðfræðilegir þættir áhrif en með þeim er m.a. átt við kynjasamsetningu og örorkubyrði sjóðanna.
Nei, lífeyrissjóðir geta verið mjög misjafnir. Sumir sjóðir eru með skylduaðild, þannig gætir þú þurft að greiða í ákveðinn sjóð en það fer eftir ráðningar- og kjarasamningum. Uppbygging sjóða er ólík. Sumir sjóðir ráðstafa öllu skylduiðgjaldinu í samtryggingu en aðrir leggja upp úr að hluti skyldulífeyrissparnaðar fari í séreign sem er erfanleg og eykur sveigjanleika við útgreiðslur.
Séreignarsparnaður er ein tegund lífeyrissparnaðar, er erfanlegur og honum fylgir sveigjanleiki við útgreiðslur. Nokkrar tegundir eru til af séreign:
Viðbótarlífeyrissparnaður
Frjáls séreign úr skyldu
Bundin séreign
Tilgreind séreign
Erfðaséreign
Viðbótarsparnaður er einn hagstæðasti sparnaður sem kostur er á. Þú leggur fyrir 2 – 4% af launum þínum í sparnaðinn og launagreiðandi greiðir 2% á móti. Þannig færðu 2% launahækkun! Þú getur tekið viðbótarsparnað út við 60 ára aldur en þú getur líka nýtt hann við fjármögnun húsnæðis án þess að greiða skatta. Viðbótarsparnaður er ein tegund séreignarsparnaðar og er því erfanlegur.
Þú getur fylgst með stöðu lífeyrissparnaðar hvenær sem er í Arion appinu. Þú getur auk þess nálgast yfirlit á Mínum síðum sjóðsins fyrir valið tímabil en yfirlit fyrir 18 mánaða tímabil eru einnig birt þar tvisvar á ári. Ef þú vilt fá heimsend pappírsyfirlit þá getur þú óskað eftir því á Mínum síðum eða með því að senda tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is. Mikilvægt er að fylgjast vel með hvort iðgjöld hafi borist og séu í samræmi við launaseðla til að draga úr líkum á að dýrmætur lífeyrissparnaður glatist ekki. Ef iðgjöld eru í vanskilum hvetjum við þig til að hafa samband við sjóðinn án tafar.