Mínar síður
Lífeyrissparnaður
SkyldulífeyrissparnaðurViðbótarlífeyrissparnaðurTilgreind séreignSkipting ellilífeyrisSkipting séreignarFjárfestingarleiðir
Útgreiðslur
EftirlaunÖrorkulífeyrirMakalífeyrirBarnalífeyrirErlendir ríkisborgarar
Rekstur sjóðsins
LykilupplýsingarÁvöxtunEignasamsetningÁrsfundargögnÁrsreikningarVerðskrá Frjálsa

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.

Lán
Lán til sjóðfélagaLánareglurVaxtaþróunVerðskráBreytingar á láni
Þjónusta við sjóðfélaga
RáðgjöfArion appiðNýliðarUmsóknirAlgengar spurningar
Launagreiðendur
Greiðsla iðgjaldaSjálfstætt starfandiSkuldleysisvottorð

Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.

Starfsemi
Saga FrjálsaStjórnÁbyrgar fjárfestingarSamningur um rekstur og eignastýringu
Regluverk
SamþykktirReglur og stefnurPersónuverndFyrirvararVefkökur
Útgefið efni
FréttirGreinarSkýrslurEfni birt í fjölmiðlum

Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.

Viltu gerast sjóðfélagi?

Það tekur örstutta stund að ganga frá umsókn

Sækja um viðbótarlífeyrissparnaðSækja um skyldulífeyrissparnað
Þjónusta

Símatími alla virka daga
milli klukkan 10-12 og 13-15
+354 444 6090
frjalsi@frjalsi.is

Styttu þér leið
LánRáðgjöfSkyldulífeyrissparnaðurViðbótarsparnaðurLaunagreiðendur
Útgreiðslur
EftirlaunÖrorkulífeyrirMakalífeyrirBarnalífeyrir
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedin

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

Borgartúni 19, 105 Reykjavík |

Kennitala 600978-0129 |

frjalsi@frjalsi.is

FyrirvararStillingar fótspora
  1. Lífeyrissparnaður
  2. ▸
  3. Útgreiðslur
  4. ▸
  5. Barnalífeyrir

Barna­lífeyrir

Barnalífeyrir er greiddur úr samtryggingarsjóði með börnum sem óvinnufær eða látinn sjóðfélagi hefur haft á framfæri.

Landslag - gult hús

Barnalífeyrir til sjóðfélaga

Barnalífeyrir er greiddur með hverju barni/kjörbarni/ættleiddu barni sjóðfélaga til 18 ára aldurs, auk fóstur- og stjúpbarna sem sjóðfélagi hefur framfært að mestu eða öllu leyti.

Við andlát sjóðfélaga: Greitt er einnig með ófæddum börnum hins látna. Greiðslur fara til framfæranda barnsins, en heimilt er að greiða inn á reikning barns frá 16 ára aldri liggi framsalsheimild framfæranda fyrir. Fullur barnalífeyrir með hverju barni er 28.781 kr. (2026).

Við örorku sjóðfélaga: Greitt er með börnum sem fædd eru eða ættleidd fyrir orkutap örorkulífeyrisþega. Greiðslur fara til sjóðfélagans sjálfs, jafnvel þó barnið búi hjá fyrrverandi maka hans. Heimilt er að greiða inn á reikning barns frá 16 ára aldri liggi framsalsheimild sjóðfélaga fyrir. Fullur barnalífeyrir með hverju barni er 21.106 kr. (2026).

Í báðum tilvikum er barnalífeyrir föst fjárhæð sem breytist árlega og er ekki framreiknaður. Fjárhæðin lækkar sé árleg lágmarksiðgjöld ekki í samræmi við viðmið síðustu tveggja almanaksára fyrir andlát eða orkutap — og í tilviki örorku getur fjárhæðin einnig lækkað vegna lægri örorkuprósentu.

Útgreiðsla séreignar

Við andlát sjóðfélaga verður öll séreign þ.e. frjáls, bundin og tilgreind séreign að erfðaséreign. Greiddur er tekjuskattur við útgreiðslu en hvorki erfðafjárskattur né fjármagnstekjuskattur.

Hvernig sæki ég um?

Við mælum með rafrænum leiðum þegar sótt er um útgreiðslu úr lífeyrissparnaði. Umsóknarferli má finna bæði í Arion appinu og á Mínum síðum.

Ef þú af einhverjum ástæðum getur ekki nýtt þér rafrænar leiðir má finna umsóknir og eyðublöð hér á vefnum.

Við minnum svo á að þú getur alltaf bókað tíma í lífeyrisráðgjöf.

Sími - Frjálsi í Arion appinu

Við tök­um vel á móti þér í ráð­gjöf

Bóka tíma í lífeyrisráðgjöf

​

Algengar spurningar

Hægt er að gera samning um skiptingu ellilífeyris með maka/sambúðaraðila og þarf sú skipting að vera gagnkvæm og jöfn. Um er að ræða þrennskonar skiptingu:

  • Skipting áunninna réttinda - samkomulag um að uppsöfnuð ellilífeyrisréttindi renni að hluta til að mynda sjálfstæð ellilífeyrisréttindi fyrir maka og skerðast þá réttindi sjóðfélaga sem því nemur.

  • Skipting framtíðarréttinda - samkomulag um að iðgjald sjóðfélaga renni að hluta til að mynda sjálfstæð réttindi fyrir maka/sambúðaraðila og hluta til að mynda sjálfstæð réttindi fyrir sjóðfélaga.

  • Skipting ellilífeyrisgreiðslna - samkomulag um að nú þegar hafnar ellilífeyrisgreiðslur renni að hluta til maka/sambúðaraðila og hluta til sjóðfélaga.

Ítarlegri upplýsingar um skiptingu ellilífeyris er að finna hér.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð um skiptingu ellilífeyrisréttinda má finna inn á vefsvæði Landssamtaka lífeyrissjóða.

Samtrygging er greidd út vegna aldurs, örorku og andláts sjóðfélaga. Í samtryggingu mynda iðgjöld ekki sjálfstæða erfanlega eign heldur veita þau ákveðin réttindi. Iðgjöldi fara í sameiginlegan sjóð. Sumir fá meira úr honum en þeir hafa lagt til, aðrir minna, svipað og tíðkast með aðrar tryggingar. Samtrygging tryggir eftirlaun, maka-, barna- og örorkulífeyri og eru réttindi til lífeyris óháð kyni, heilsufari, hjúskaparstöðu og fjölskyldustærð.

Til samanburðar er séreign að fullu erfanleg. Séreign getur verið frjáls séreign, bundin séreign og tilgreind séreign vegna skyldullífeyrissparnaðar og frjáls séreign vegna viðbótarlífeyrissparnaðar.

Til upplýsingaþ á tryggir bundin séreign sjóðfélögum Erfanlegu leiðarinnar eftirlaun fyrri hluta eftirlaunaáranna en samtrygging á seinni hluta eftirlaunaáranna.

Langflestir greiða í fleiri en einn lífeyrissjóð yfir starfsævina. Ástæðuna má rekja til þess að kjara- og ráðningarsamningar kveða oft á um í hvaða lífeyrissjóð skuli greiða og því er ekki alltaf frjálst val um lífeyrissjóð. Lífeyrisréttindi tapast ekki þó þau séu á víð og dreif en ekki er heimilt að flytja lífeyrisréttindi á milli lífeyrissjóða.

Lífeyrissjóðir á Íslandi hafa gert með sér samkomulag sem einfaldar umsóknarferlið til muna. Sjóðfélagi sækir um útgreiðslu lífeyris í einum lífeyrissjóði, þeim sjóði sem greitt var til síðast. Sá sjóður sendir umsókn og fylgigögn, ef við á, á aðra sjóði, svo að útgreiðslur hefjist úr þeim einnig, óski sjóðfélagi ekki eftir öðru.

Samkomulagið gildir um eftirlaun, maka-, barna- og örorkulífeyri en sjálfur þarf sjóðfélagi að sækja um séreign hjá öllum þeim sjóðum sem hann á séreign í.

Frjálsi áframsendir umsókn um eftirlaun úr Frjálsi leiðinni og Tryggingaleiðinni en ekki úr Erfanlegu leiðinni þar sem bundin séreign tryggir eftirlaun á fyrri hluta eftirlaunaára.

Dæmi 1: hjá þeim sem er með 0 kr. í aðrar tekjur skattleggst 1.400.000 kr. eingreiðsla svo:

  • Fyrstu 498.122 kr. skv. skattþrepi 1 um 31,49%.

  • Næstu 853.121 kr. skv. skattþrepi 2 um 37,99% þ.e. 498.123 kr. - 1.398.450 kr.

  • Síðustu 48.757 kr. skv. skattþrepi 3 um 46,29% þ.e. allt umfram 1.398.450 kr.

Dæmi 2: hjá þeim sem er með 300.000 kr. í aðrar tekjur skattleggst 1.400.000 kr. eingreiðsla svo:

  • Fyrstu 198.122 kr. skv. skattþrepi 1 um 31,49%.

  • Næstu 853.121 kr. skv. skattþrepi 2 um 37,99% þ.e.

    498.123 kr. - 1.398.450 kr.

  • Síðustu 348.757 kr. skv. skattþrepi 3 um 46,29% þ.e. allt umfram

    1.398.450 kr.

Sjóðnum er óheimilt að skattleggja meira en 498.122 kr. skv. skattþrepi 1 og 853.121 kr. skv. skattþrepi 2 í hverjum mánuði.
Skattleysismörk lífeyrisgreiðslna 2026: sá sem tekur út 230.206 kr. lífeyrisgreiðslu og nýtir 100% persónuafslátt greiðir 0 kr. í skatt og fær 230.206 kr. inn á reikning sinn.
Sá sem nýtir mánaðarlegan persónuafslátt sinn 100% vegna lífeyrisgreiðslna fær 72.492 kr. hærri lífeyrisgreiðslu inn á reikninginn sinn.

Heimilt er að nýta persónuafslátt maka. Einnig látins maka í allt að 9 mánuði frá andlátsmánuði.

Meira um skattamál á skatturinn.is

Viðmiðunarfjárhæð fyrir eingreiðslu séreignar breytist í hlutfalli við vísitölu neysluverðs í janúar ár hvert og er 1.918.732 kr. fyrir árið 2026. Fjárhæðin gildir um frjálsa séreign vegna örorku og bundna séreign vegna aldurs. Einnig um tilgreinda séreign vegna örorku og aldurs.

Það er frjálst að taka séreign út um leið og útgreiðslureglur leyfa, en almennt er ekki skattalega hagkvæmt að taka út séreign til þess eins að færa yfir á annað sparnaðarform. Ástæðan er sú að hvorki er greiddur fjármagnstekjuskattur af ávöxtun séreignar né erfðafjárskattur við fráfall. Auk þess er ekki hægt að ganga að séreign vegna fjárhagslegra skuldbindinga líkt og gildir um flestar aðrar eignir.

Það er hins vegar skynsamlegt að skoða hvort breyta ætti um fjárfestingarleið, þ.e. flytja séreignina í áhættuminni leið, ef við á.

Þó er um að gera að taka skerðanlega séreign út áður en greiðslur hefjast frá Tryggingastofnun, sumir kjósa jafnvel að lifa á skerðanlegri séreign um tíma áður en greiðslur frá TR hefjast.

Inneign getur hækkað/lækkað í samræmi við breytingu á gengi sjóðsins frá þeim degi sem sótt er um þar til útgreiðslur eiga sér stað.

Sé sjóðfélagi í Ævilínu flyst inneign hans í áhættuminnstu leiðina þ.e. í Frjálsa 3 þegar ein útgreiðsla hefur átt sér stað. Iðgjöld sem berast eftir að útgreiðsla er hafin, bókast í Frjálsa 3.

Þegar erfðaeign er flutt yfir á lífeyrissparnað erfingja er henni ráðstafað í Ævilínu samkvæmt aldri erfingja, nema erfingi hafi átt inneign fyrir í annarri fjárfestingarleið, þá er erfðaeign flutt í þá fjárfestingarleið. Í tilfellum Ævilínu, flyst inneign hans í áhættuminnstu leiðina, þ.e. Frjálsa 3, þegar ein útgreiðsla hefur átt sér stað.