Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.

Arnaldur Loftsson
Framkvæmdastjóri
Arnaldur er fæddur árið 1970. Hann er með BS-gráðu í Business Communication og hefur lokið prófi til löggildingar í verðbréfamiðlun og prófi til löggildingar í vátryggingamiðlun.
Hann hefur verið framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins frá árinu 2004.
Hann var áður framkvæmdastjóri Séreignalífeyrissjóðsins á árunum 2001–2004. Á sæti í samskiptanefnd Landssamtaka lífeyrissjóða.

Ásdís Eva Hannesdóttir
Formaður stjórnar
Ásdís Eva er fædd árið 1958. Hún er viðskiptafræðingur með MBA-gráðu og er framkvæmdastjóri Norræna félagsins á Íslandi.
Hún hefur setið í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins frá árinu 2002 og rennur núverandi kjörtímabil út á ársfundi árið 2027.
Auk þess að starfa í stjórn Frjálsa gegnir hún stöðu varamanns í stjórn Snorrasjóðs og Almannaheilla.

Magnús Pálmi Skúlason
Varaformaður
Magnús Pálmi er fæddur árið 1975. Hann er lögmaður og starfar sem slíkur hjá Lögskiptum.
Hann hefur setið í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins frá árinu 2011 og rennur núverandi kjörtímabil út á ársfundi árið 2027.
Auk þess að starfa í stjórn Frjálsa er hann í stjórn Xyzeta ehf. og formaður stjórnar Lögskipta ehf., einnig er hann varamaður í stjórn Advance.

Björn Ingi Victorsson
Stjórnarmaður
Björn Ingi er fæddur árið 1974. Hann er löggiltur endurskoðandi og viðskiptafræðingur með cand. oecon gráðu og er forstjóri Steypustöðvarinnar.
Hann hefur setið í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins frá árinu 2020 og rennur núverandi kjörtímabil út á ársfundi árið 2029.
Auk starfa í stjórn gegnir hann fjölbreyttum stjórnarstörfum, meðal annars hjá Þ12 ehf. og Hólaskarði ehf., er varamaður í stjórn Austurstrætis 6 ehf. og formaður stjórnar Íþöku fasteignafélags.
Þá situr hann jafnframt í stjórnum Steypustöðin-námur ehf., Steinríks ehf., Krafts, Blikahjalla ehf., Solstice Materials ehf. og Solstice Pozzolan Materials ehf.

Elías Jónatansson
Stjórnarmaður
Elías er fæddur árið 1959. Hann er véla- og iðnaðarverkfræðingur og er orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða.
Elías hefur setið í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins frá árinu 2007 og rennur kjörtímabil hans út á ársfundi árið 2028.

Elín Þórðardóttir
Stjórnarmaður
Elín er fædd árið 1963. Hún er rekstrarhagfræðingur og er fjármálastjóri Árvakurs.
Hún hefur setið í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins frá árinu 2009 og rennur kjörtímabil hennar út á ársfundi árið 2028.
Hún situr jafnframt í stjórnum GNEIS ehf. og Póstdreifingar ehf.

Haraldur Pálsson
Stjórnarmaður
Haraldur er fæddur árið 1989. Hann er hagfræðingur og tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands. Hann hefur haft verðbréfaréttindi frá árinu 2021 og lærði stýrimannsnám við Tækniskóla Íslands, sem hann lauk árið 2010. Haraldur er framkvæmdastjóri Eyjaganga ehf.
Haraldur hefur setið í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins frá árinu 2025 og rennur kjörtímabil hans út á ársfundi árið 2028.
Haraldur situr jafnframt í stjórnum Nónhóls 2021 ehf., Jivaro ehf., Langa ehf., HRLD Holding ehf., Vautey ehf., Vevendre ehf., Eyjaganga ehf. og Seil ehf.

Hólmfríður Einarsdóttir
Stjórnarmaður
Hólmfríður er fædd árið 1972. Hún er með gráðu í viðskipta- og alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík, MBA-gráðu frá Rotterdam School of Management, Erasmus University og hefur lokið námi í stjórnarháttum fyrirtækja frá Erasmus University. Hólmfríður hefur lokið diplómanámi fyrir viðurkennda stjórnarmenn frá Akademías. Hólmfríður er framkvæmdastjóri Blue Lagoon Skin Science ehf.
Hún var fyrst kosin í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins á ársfundi árið 2026 og rennur kjörtímabil hennar út á ársfundi árið 2029.



Elín Þórðardóttir, formaður
Björn Ingi Victorsson
Elías Jónatansson