Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.
Launagreiðendur greiða skyldulífeyrissparnað mánaðarlega í lífeyrissjóð fyrir alla starfandi einstaklinga á aldrinum 16-70 ára og viðbótarlífeyrissparnað fyrir þá sem gera samning um hann.
Sjálfstætt starfandi eða sjálfstæðir atvinnurekendur greiða líka skyldulífeyrissparnað í lífeyrissjóð og viðbótarsparnað óski þeir þess.
Launagreiðendur geta óskað eftir að fá sent skuldleysisvottorð.