Þú ert í góðum höndum
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.

Frjálsi er góður kostur fyrir þá sem hafa val um lífeyrissjóð og vilja að lífeyrissparnaðurinn sinn erfist. Séreignarhluti skyldulífeyrissparnaðarins veitir þér einnig aukinn sveigjanleika í útgreiðslum.
Erfanleiki
Sveigjanleiki í útgreiðslum
Fjölbreyttar fjárfestingarleiðir
Ævilöng eftirlaun
Örorku-, maka- og barnalífeyrir
Frjálsi býður upp á tvær leiðir fyrir skyldulífeyrissparnað sem sjóðfélagar geta valið um. Frjálsa leiðin býður upp á mestan sveigjanleika þegar kemur að útgreiðslum en Erfanlega leiðin býður upp á mestan erfanleika.
Þú getur breytt um leið hvenær sem er í Arion appinu eða á Mínum síðum.
Neðangreind skipting miðast við 15,5% heildariðgjald.
44% - Frjáls séreign er laus til útborgunar frá 60 ára aldri og erfist að fullu.
56% - Samtrygging tryggir þér ellilífeyri allt frá 60 ára aldri til æviloka, ásamt rétti til örorku-, maka- og barnalífeyris.
34% - Frjáls séreign er laus til útborgunar frá 60 ára aldri og erfist að fullu.
42% - Bundin séreign er laus til mánaðarlegrar útborgunar allt frá 60 ára aldri til að lágmarki 82 ára aldurs og erfist að fullu.
24% - Samtrygging tryggir þér ellilífeyri allt frá 82 ára aldri til æviloka, ásamt rétti til örorku-, maka- og barnalífeyris.
Mánaðarlaun
Aldur við inngöngu
Fæðingarár
Erfanleg inneign við 70 ára aldur
43.649.514 kr.
Ellilífeyrir frá 70 ára aldri
272.676 kr.
á mánuði til æviloka
Erfanleg inneign við 70 ára aldur
76.305.817 kr.
Ellilífeyrir frá 82 ára aldri
184.143 kr.
á mánuði til æviloka
Niðurstaðan er sett fram í dæmaskyni og miðast við 3,5% raunávöxtun og starfslok við 70 ára aldur.
Frjálsi býður upp á fjórar misáhættumiklar fjárfestingarleiðir fyrir séreign sem sjóðfélagar geta valið um. Flestir sjóðfélagar velja Ævilínu, en þá færist inneign þín sjálfkrafa á milli fjárfestingarleiða 1-3.
Þú getur breytt líka um leið hvenær sem er í Arion appinu eða á Mínum síðum Frjálsa.


Frjálsi lífeyrissjóðurinn er langtíma fjárfestir sem leggur áherslu á að hámarka ávöxtun sjóðfélaga til langs tíma litið að teknu tilliti til áhættu.
Sjóðurinn hefur siðferðisleg gildi að leiðarljósi við fjárfestingarákvarðanir og er meðvitaður um að þær hafa áhrif á ólíka hagsmunaaðila og samfélagið í heild sinni.
Þú getur sótt um í Arion appinu eða Mínum síðum.
Þú getur valið skyldulífeyrissparnað Frjálsa ef skylduaðild að öðrum lífeyrissjóði kemur ekki fram í kjarasamningi eða ráðningarsamningi sem þú ert aðili að. Hafðu samband við samtök vinnuveitenda eða stéttarfélag þitt ef þú ert í vafa. Sjálfstæðir atvinnurekendur hafa yfirleitt frjálst val um lífeyrissjóð. Sjá úrval skyldulífeyrissparnaðarleiða Frjálsa hér fyrir ofan.
Iðgjöld í samtryggingu renna í sameiginlegan sjóð sem sumir fá meira úr en þeir hafa lagt til, aðrir minna, líkt og gildir um almennar tryggingar. Samtrygging veitir réttindi til eftirlauna, maka-, barna- og örorkulífeyris.
Lífeyrisréttindi í samtryggingu eru verðtryggð.
Bundin séreign verður eingöngu til í Erfanlegu leiðinni í Frjálsa en uppbygging hennar er frábrugðin hefðbundum leiðum lífeyrissjóða að því leyti að í Erfanlegu leiðinni greiðast eftirlaun úr bundinni séreign á fyrri hluta eftirlaunaáranna en samtryggingu á seinni hluta eftirlaunaáranna. Viðmiðunaraldur eftirlauna er 70 ára en flýta má útgreiðslu eftirlauna til allt að 60 ára gegn lægri mánaðarlegri fjárhæð. Útgreiðsla samtryggingarhlutans hefst 82/83/84 eða 85 ára, þegar útgreiðslum bundinnar séreignar er lokið. Fjárhæð bundinnar séreignar hækkar/lækkar í samræmi við gengi fjárfestingarleiðar og sá hluti bundinnar séreignar sem ekki greiðist sjóðfélaga, erfist að fullu.
Þann 1. janúar 2023 hækkaði skylduiðgjald þ.e. lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð úr 12% í 15,5% af launum. Framlag launþega er 4% og framlag launagreiðanda er 11,5%, en dæmi eru um að launþegar semji um hærra mótframlag við launagreiðandur. Sjálfstæðir atvinnurekendur greiða bæði framlag launþega og launagreiðanda. Samhliða lífeyrisiðgjöldum greiðast 0,10% af launum í VIRK starfsendurhæfingarsjóð.
Já, það tekur 3-4 ár að öðlast rétt til framreiknings á örorku- og makalífeyri og því sérlega mikilvægt að huga að tryggingum fyrstu árin á vinnumarkaði.
Nei, það er ekki hægt. Þú getur hins vegar séð öll þau lífeyrisréttindi sem þú hefur áunnið þér á starfsævinni í Lífeyrisgáttinni sem er aðgengileg í gegnum Mínar síður Frjálsa og annarra lífeyrissjóða. Nánari upplýsingar á lifeyrisgattin.is
Þú getur fylgst með stöðu lífeyrissparnaðar hvenær sem er í Arion appinu. Þú getur auk þess nálgast yfirlit á Mínum síðum sjóðsins fyrir valið tímabil en yfirlit fyrir 18 mánaða tímabil eru einnig birt þar tvisvar á ári. Ef þú vilt fá heimsend pappírsyfirlit þá getur þú óskað eftir því á Mínum síðum eða með því að senda tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is. Mikilvægt er að fylgjast vel með hvort iðgjöld hafi borist og séu í samræmi við launaseðla til að draga úr líkum á að dýrmætur lífeyrissparnaður glatist ekki. Ef iðgjöld eru í vanskilum hvetjum við þig til að hafa samband við sjóðinn án tafar.
Hægt er að gera samning um skiptingu ellilífeyris með maka/sambúðaraðila og þarf sú skipting að vera gagnkvæm og jöfn. Um er að ræða þrennskonar skiptingu:
Skipting áunninna réttinda - samkomulag um að uppsöfnuð ellilífeyrisréttindi renni að hluta til að mynda sjálfstæð ellilífeyrisréttindi fyrir maka og skerðast þá réttindi sjóðfélaga sem því nemur.
Skipting framtíðarréttinda - samkomulag um að iðgjald sjóðfélaga renni að hluta til að mynda sjálfstæð réttindi fyrir maka/sambúðaraðila og hluta til að mynda sjálfstæð réttindi fyrir sjóðfélaga.
Skipting ellilífeyrisgreiðslna - samkomulag um að nú þegar hafnar ellilífeyrisgreiðslur renni að hluta til maka/sambúðaraðila og hluta til sjóðfélaga.
Ítarlegri upplýsingar um skiptingu ellilífeyris er að finna hér.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð um skiptingu ellilífeyrisréttinda má finna inn á vefsvæði Landssamtaka lífeyrissjóða.
Lífeyrissjóður: Félagsmaður í SSF greiðir 4% af launum í lífeyrissjóð og fær 6% mótframlag frá vinnuveitanda í sama lífeyrissjóð.
Aðgerð: Umsókn um skyldulífeyrissparnað í appi eða á Mínum síðum.
Séreignarsjóður: Félagsmaður í SSF fær mótframlag skyldulífeyrissparnaðar að hluta til greitt í séreignarsjóð þ.e. 5,5% fyrstu þrjú árin í SSF og 7% eftir það.
Aðgerð: Leita skal til ráðgjafa Lífeyrisþjónustu Arion til að gera samning um viðbótarlífeyrissparnað.
Frjálsa leiðin | Erfanlega leiðin |
|---|---|
51,5% - Samtrygging tryggir þér ellilífeyri allt frá 60 ára aldri til æviloka, ásamt rétti til örorku-, maka- og barnalífeyris. 48,5% - Frjáls séreign er laus til útborgunar eftir hentugleikum frá 60 ára aldri og erfist að fullu. | 21,2% - Samtrygging tryggir þér ellilífeyri allt frá 82 ára aldri til æviloka, ásamt rétti til örorku-, maka- og barnalífeyris. 37,6% - Bundin séreign er laus til mánaðarlegrar útborgunar allt frá 60 ára aldri til að lágmarki 82 ára aldurs og erfist að fullu. 41,2% - Frjáls séreign er laus til útborgunar eftir hentugleikum frá 60 ára aldri og erfist að fullu. |
*Skiptingin miðar við 7% mótframlag skyldulífeyrissparnaðar eftir þrjú ár í SSF.
Að auki geta félagsmenn SSF greitt í viðbótarlífeyrissparnað.
Séreignarsjóður: Félagsmaður í SSF nýtur sömu kjara og launþegar á almennum vinnumarkaði þ.e. getur greitt
2-4% af launum í hefðbundinn viðbótarlífeyrissparnað og fær 2% mótframlag frá vinnuveitanda.
Aðgerð: Samningur um viðbótarlífeyrissparnað í appi eða á Mínum síðum.