Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.
Heildarfjöldi sjóðfélaga sem eiga inneign og/eða réttindi í Frjálsa.
Hrein eign til greiðslu lífeyris og staða Frjálsa í stærðarröð íslenskra lífeyrissjóða.
Nafnávöxtun síðustu 12 mánaða m.v. 31.10.2026.
Rekstrarkostnaður og bein fjárfestingargjöld sem hlutfall af meðalstöðu hreinnar eignar á markaðsvirði.
Áætluð fjárfestingargjöld sem hlutfall af meðalstöðu hreinnar eignar á markaðsvirði.
Heildarvelta nam um 224 milljörðum. Kaup og sala á verðbréfum og sjóðum. Frjálsi greiðir ekki þóknun fyrir alla veltu, ekki eru greiddar þóknanir við kaup eða sölu á hlutdeildarskírteinum í sjóðum hjá sjóðastýringarfélögum.
Viðskipti við miðlanir. Í viðskiptum með verðbréf fer Frjálsi eftir bestu framkvæmd viðskipta (e. Best execution) þar sem markmiðið er að tryggja að bestu kjara sé ætíð leitað fyrir hönd sjóðsins. Opið er fyrir viðskipti við allar verðbréfamiðlanir landsins og er mismunandi hver er hlutdeild hverrar miðlunar af heildarviðskiptum sjóðsins með einstök verðbréf.
Útvistun á eignastýringu Frjálsa til Arion banka fela í sér aðstæður þar sem hagsmunaárekstrar koma upp og því er mikilvægt að gera ráðstafanir til að þeir valdi ekki sjóðnum tjóni. Hluti af þessum ráðstöfunum er mánaðarleg upplýsingargjöf til stjórnar um fjárfestingar sjóðsins tengdum bankanum og dótturfélögum hans sbr. sú sem birt er hér fyrir neðan, m.v. 31.12.2025.