Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins
Meirihluti eigna sjóðsins er séreign sjóðfélaga.

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.
Meirihluti eigna sjóðsins er séreign sjóðfélaga.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978 af Fjárfestingarfélagi Íslands. Í upphafi gátu sjóðfélagar ráðstafað öllum lífeyrissparnaði sínum í erfanlega séreign.
Hinsvegar með tilkomu laga nr. 129/1997 var sjóðurinn skyldaður til að stofna tryggingadeild.
Frjálsi hélt þó áfram að bjóða sjóðfélögum upp á að meirihluti skyldulífeyrissparnaðar þeirra rynni í erfanlega séreign, en erfanleg séreign úr skyldulífeyrissparnaði hefur verið eitt af sérkennum Frjálsa í gegnum tíðina.

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna sjóðsins er séreign sjóðfélaga hans.
Allar greiðslur sem bárust í Frjálsa fyrir 1. júlí 1999 runnu í frjálsa séreign, en skyldulífeyrissparnaður sem borist hefur í sjóðinn eftir þann tíma rennur í þá skyldulífeyrissparnaðarleið sem sjóðfélagi hefur valið.
Frjálsi tekur einnig við viðbótarsparnaði sem rennur óskipt í séreign sjóðfélaga. Frjálsi hefur ávallt verið opinn öllum sem í hann vilja greiða og án skylduaðildar.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur ávallt útvistað öllum rekstri og eignastýringu til fjármálafyrirtækis. Arion banki hefur séð um rekstur sjóðsins frá 2008.
KPMG sinnir ytri endurskoðun Frjálsa og Deloitte innri endurskoðun.
Bjarni Guðmundsson er tryggingastærðfræðingur sjóðsins.
Frá og með 1. apríl 2019 þá varð framkvæmdastjóri Frjálsa starfsmaður sjóðsins og ráðinn af stjórn hans.