Leggjum áherslu á að hámarka ávöxtun

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn er langtíma fjárfestir sem leggur áherslu á að hámarka ávöxtun sjóðfélaga til langs tíma litið að teknu tilliti til áhættu.
Sjóðurinn hefur siðferðisleg gildi að leiðarljósi við fjárfestingarákvarðanir og er meðvitaður um að þær hafa áhrif á ólíka hagsmunaaðila og samfélagið í heild sinni.

Það er einfalt. Frjálsi býður upp á fjórar misáhættumiklar fjárfestingarleiðir fyrir séreign sem sjóðfélagar geta valið um. Flestir sjóðfélagar velja Ævilínu, en þá færist inneign þín sjálfkrafa á milli fjárfestingarleiða 1-3.
Þú getur skipt um fjárfestingarleið hvenær sem er í Arion appinu eða á Mínum síðum Frjálsa.
Stefna Frjálsa um ábyrgar fjárfestingar er sett með hliðsjón af grunngildum Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð.