Mínar síður
Lífeyrissparnaður
SkyldulífeyrissparnaðurViðbótarlífeyrissparnaðurTilgreind séreignSkipting ellilífeyrisSkipting séreignarFjárfestingarleiðir
Útgreiðslur
EftirlaunÖrorkulífeyrirMakalífeyrirBarnalífeyrirErlendir ríkisborgarar
Rekstur sjóðsins
LykilupplýsingarÁvöxtunEignasamsetningÁrsfundargögnÁrsreikningarVerðskrá Frjálsa

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.

Lán
Lán til sjóðfélagaLánareglurVaxtaþróunVerðskráBreytingar á láni
Þjónusta við sjóðfélaga
RáðgjöfArion appiðNýliðarUmsóknirAlgengar spurningar
Launagreiðendur
Greiðsla iðgjaldaSjálfstætt starfandiSkuldleysisvottorð

Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.

Starfsemi
Saga FrjálsaStjórnÁbyrgar fjárfestingarSamningur um rekstur og eignastýringu
Regluverk
SamþykktirReglur og stefnurPersónuverndFyrirvararVefkökur
Útgefið efni
FréttirGreinarSkýrslurEfni birt í fjölmiðlum

Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.

Viltu gerast sjóðfélagi?

Það tekur örstutta stund að ganga frá umsókn

Sækja um viðbótarlífeyrissparnaðSækja um skyldulífeyrissparnað
Þjónusta

Símatími alla virka daga
milli klukkan 10-12 og 13-15
+354 444 6090
frjalsi@frjalsi.is

Styttu þér leið
LánRáðgjöfSkyldulífeyrissparnaðurViðbótarsparnaðurLaunagreiðendur
Útgreiðslur
EftirlaunÖrorkulífeyrirMakalífeyrirBarnalífeyrir
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedin

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

Borgartúni 19, 105 Reykjavík |

Kennitala 600978-0129 |

frjalsi@frjalsi.is

FyrirvararStillingar fótspora
  1. Lífeyrissparnaður
  2. ▸
  3. Útgreiðslur
  4. ▸
  5. Eftirlaun

Eftir­laun

Eftirlaun er greidd mánaðarlega úr Frjálsa eftir 60 ára aldur og til æviloka.

Falleg hús

Skyldulífeyrissparnaður

Í Frjálsa eiga sjóðfélagar réttindi í a.m.k. einni af þremur skyldulífeyrissparnaðarleiðum sjóðsins.

  • Frjálsa leiðin: eftirlaun greiðast úr samtryggingu. Viðmiðunaraldur er 70 ára. Flýta má til allt að 60 ára gegn lægri mánaðarlegri fjárhæð eða fresta til allt að 80 ára gegn hærri.

  • Tryggingaleiðin: eftirlaun greiðast úr samtryggingu. Viðmiðunaraldur er 67 ára. Flýta má til allt að 60 ára gegn lægri mánaðarlegri fjárhæð eða fresta til allt að 80 ára gegn hærri.

  • Erfanlega leiðin: eftirlaun greiðast úr bundinni séreign á fyrri hluta eftirlaunaáranna og samtryggingu á seinni hluta þeirra. Viðmiðunaraldur er 70 ára. Flýta má bundinni séreign til allt að 60 ára gegn lægri mánaðarlegri fjárhæð eða fresta til allt að 85 ára gegn hærri. Flýta má samtryggingu til allt að 82 ára gegn lægri mánaðarlegri fjárhæð en útgreiðsla samtryggingar hefst eigi síðar en 85 ára. Útgreiðslum bundinnar séreignar skal þá vera lokið. Eingreiðsla bundinnar séreignar er heimil þegar inneign er/fer undir viðmiðunarfjárhæð, 1.918.732 kr. (2026). Við það falla mánaðargreiðslur niður þar til samtrygging tekur við. Frjálst er að dreifa eingreiðslu á fleiri mánuði t.d. vegna skattahagræðingar. Ein sérstaða Erfanlegu leiðarinnar er erfanleg séreign því sá hluti bundinnar séreignar sem ekki greiðist sjóðfélaga, erfist að fullu.

Út­greiðsla sér­eignar

Frjáls sér­eign viðbótar­sparnaðar

Frá 60 ára er frjáls séreign laus til útgreiðslu, að vali sjóðfélaga, þó ekki fyrr en tveimur árum eftir greiðslu fyrsta iðgjalds. Hægt er að óska eftir mánaðarlegum eða árlegum greiðslum auk eingreiðslu. Viðbótarsparnaður 4%+2% skerðir ekki greiðslur Tryggingastofnunar.


Landslag - ´húsagata

Frjáls sér­eign skyldu­lífeyris­sparnaðar

Frá 60 ára er frjáls séreign laus til útgreiðslu, að vali sjóðfélaga, þó ekki fyrr en tveimur árum eftir greiðslu fyrsta iðgjalds. Hægt er að óska eftir mánaðarlegum eða árlegum greiðslum auk eingreiðslu.

Getur skert greiðslur Tryggingastofnunar samkvæmt lögum.

Bundin sér­eign

Frá 60 ára geta útgreiðslur bundinnar séreignar fyrst hafist en bundin séreign tryggir eftirlaun á fyrri hluta eftirlaunaáranna. Nánar í útgreiðslureglum ellilífeyris hér að ofan.

Getur skert greiðslur Tryggingastofnunar samkvæmt lögum.

Til­greind sér­eign

Frá 62 ára geta mánaðarlegar útgreiðslur tilgreindrar séreignar fyrst hafist og skulu mánaðarlegar greiðslur dreifast til 67 ára aldurs. Eingreiðsla er þó heimil þegar tilgreind séreign fer undir viðmiðunarfjárhæð, 1.918.732 kr. (2026) og frá 67 ára er heimilt að greiða tilgreinda séreign í eingreiðslu, óháð fjárhæð, nema sjóðfélagi óski eftir öðru.

Getur skert greiðslur Tryggingastofnunar samkvæmt lögum.

Gott að vita

Orkutap eft­ir sex­tugt

Komi til orkutaps eftir 60 ára en fyrir viðmiðunaraldur eftirlauna þá er almenna reglan að sækja um örorkulífeyri fremur en flýta eftirlaunum. Ef eftirlaunagreiðslur úr samtryggingu eru hafnar er ekki hægt að sækja um örorkulífeyri, þrátt fyrir orkutap. Fjárhæð eftirlauna skerðist ekki þó sjóðfélagi hafi áður fengið örorkulífeyri.

Hálf­ur lífeyrir

Sjóðfélagi sem greitt hefur skylduiðgjald í Frjálsa, náð 60 ára aldri og ekki hafið töku eftirlauna getur sótt um hálfan ellilífeyri. Þá er t.d. hægt að flýta helmingi réttinda gegn lægri mánaðarlegri fjárhæð og fresta hluta til viðmiðunaraldurs eða lengur gegn hærri mánaðarlegri fjárhæð. Samhliða er hægt að sækja um hálfan ellilífeyri hjá TR, en um hann gildir sérstakt frítekjumark, sjá nánar á Island.is

.

Lífeyris­rétt­indi eru verð­tryggð

Lífeyrisréttindi eru verðtryggð og fer síðasta greiðsla fram síðasta virka dag andlátsmánaðar. Ekki er greitt aftur í tímann.

Frjálsi legg­ur áherslur á raf­ræn­ar leið­ir í Arion app­inu og á mín­um síð­um

Breyting á umsókn

Á mínum síðum er hægt að senda inn útgreiðsluumsóknir og gera breytingar á umsóknum sem þegar hafa verið skráðar.

Skyldulífeyrissparnaður hjá öðrum

Á Lífeyrisgáttinni á Mínum síðum geturðu fylgst með stöðu skyldulífeyrissparnaðar hjá öðrum lífeyrissjóðum.

Væntanlegar mánaðargreiðslur

Arion appið veitir yfirsýn yfir áætlaða stöðu séreignarsparnaðar við starfslok og væntanlegar mánaðarlegar greiðslur.

Áætluð eftirlaun

Í Arion appinu og á Mínum síðum má einnig sjá áunnin og áætluð eftirlaun við starfslok, ásamt áhrifum þess að flýta eða fresta töku lífeyris.

Heildaryfirlit lífeyrissparnaðar

Í Arion appinu og á Mínum síðum er að finna heildaryfirlit yfir lífeyrissparnað þinn hjá Frjálsa.

Útgreiðsla séreignar

Í Arion appinu er hægt að sækja um útgreiðslu frjálsrar séreignar vegna aldurs eða erfða.

Sími - Frjálsi í Arion appinu

Útgreiðslur í Arion appinu

Í Arion appinu er hægt að sækja um útgreiðslu frjálsrar séreignar vegna aldurs og erfða.

Útgreiðsluferlið er einfalt og aðeins opið þeim sem náð hafa viðmiðunaraldri eða eiga erfðaséreign.

Við tök­um vel á móti þér í ráð­gjöf

Bóka tíma í lífeyrisráðgjöf

​

Algengar spurningar

Hægt er að gera samning um skiptingu ellilífeyris með maka/sambúðaraðila og þarf sú skipting að vera gagnkvæm og jöfn. Um er að ræða þrennskonar skiptingu:

  • Skipting áunninna réttinda - samkomulag um að uppsöfnuð ellilífeyrisréttindi renni að hluta til að mynda sjálfstæð ellilífeyrisréttindi fyrir maka og skerðast þá réttindi sjóðfélaga sem því nemur.

  • Skipting framtíðarréttinda - samkomulag um að iðgjald sjóðfélaga renni að hluta til að mynda sjálfstæð réttindi fyrir maka/sambúðaraðila og hluta til að mynda sjálfstæð réttindi fyrir sjóðfélaga.

  • Skipting ellilífeyrisgreiðslna - samkomulag um að nú þegar hafnar ellilífeyrisgreiðslur renni að hluta til maka/sambúðaraðila og hluta til sjóðfélaga.

Ítarlegri upplýsingar um skiptingu ellilífeyris er að finna hér.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð um skiptingu ellilífeyrisréttinda má finna inn á vefsvæði Landssamtaka lífeyrissjóða.

Samtrygging er greidd út vegna aldurs, örorku og andláts sjóðfélaga. Í samtryggingu mynda iðgjöld ekki sjálfstæða erfanlega eign heldur veita þau ákveðin réttindi. Iðgjöldi fara í sameiginlegan sjóð. Sumir fá meira úr honum en þeir hafa lagt til, aðrir minna, svipað og tíðkast með aðrar tryggingar. Samtrygging tryggir eftirlaun, maka-, barna- og örorkulífeyri og eru réttindi til lífeyris óháð kyni, heilsufari, hjúskaparstöðu og fjölskyldustærð.

Til samanburðar er séreign að fullu erfanleg. Séreign getur verið frjáls séreign, bundin séreign og tilgreind séreign vegna skyldullífeyrissparnaðar og frjáls séreign vegna viðbótarlífeyrissparnaðar.

Til upplýsingaþ á tryggir bundin séreign sjóðfélögum Erfanlegu leiðarinnar eftirlaun fyrri hluta eftirlaunaáranna en samtrygging á seinni hluta eftirlaunaáranna.

Langflestir greiða í fleiri en einn lífeyrissjóð yfir starfsævina. Ástæðuna má rekja til þess að kjara- og ráðningarsamningar kveða oft á um í hvaða lífeyrissjóð skuli greiða og því er ekki alltaf frjálst val um lífeyrissjóð. Lífeyrisréttindi tapast ekki þó þau séu á víð og dreif en ekki er heimilt að flytja lífeyrisréttindi á milli lífeyrissjóða.

Lífeyrissjóðir á Íslandi hafa gert með sér samkomulag sem einfaldar umsóknarferlið til muna. Sjóðfélagi sækir um útgreiðslu lífeyris í einum lífeyrissjóði, þeim sjóði sem greitt var til síðast. Sá sjóður sendir umsókn og fylgigögn, ef við á, á aðra sjóði, svo að útgreiðslur hefjist úr þeim einnig, óski sjóðfélagi ekki eftir öðru.

Samkomulagið gildir um eftirlaun, maka-, barna- og örorkulífeyri en sjálfur þarf sjóðfélagi að sækja um séreign hjá öllum þeim sjóðum sem hann á séreign í.

Frjálsi áframsendir umsókn um eftirlaun úr Frjálsi leiðinni og Tryggingaleiðinni en ekki úr Erfanlegu leiðinni þar sem bundin séreign tryggir eftirlaun á fyrri hluta eftirlaunaára.

Dæmi 1: hjá þeim sem er með 0 kr. í aðrar tekjur skattleggst 1.400.000 kr. eingreiðsla svo:

  • Fyrstu 498.122 kr. skv. skattþrepi 1 um 31,49%.

  • Næstu 853.121 kr. skv. skattþrepi 2 um 37,99% þ.e. 498.123 kr. - 1.398.450 kr.

  • Síðustu 48.757 kr. skv. skattþrepi 3 um 46,29% þ.e. allt umfram 1.398.450 kr.

Dæmi 2: hjá þeim sem er með 300.000 kr. í aðrar tekjur skattleggst 1.400.000 kr. eingreiðsla svo:

  • Fyrstu 198.122 kr. skv. skattþrepi 1 um 31,49%.

  • Næstu 853.121 kr. skv. skattþrepi 2 um 37,99% þ.e.

    498.123 kr. - 1.398.450 kr.

  • Síðustu 348.757 kr. skv. skattþrepi 3 um 46,29% þ.e. allt umfram

    1.398.450 kr.

Sjóðnum er óheimilt að skattleggja meira en 498.122 kr. skv. skattþrepi 1 og 853.121 kr. skv. skattþrepi 2 í hverjum mánuði.
Skattleysismörk lífeyrisgreiðslna 2026: sá sem tekur út 230.206 kr. lífeyrisgreiðslu og nýtir 100% persónuafslátt greiðir 0 kr. í skatt og fær 230.206 kr. inn á reikning sinn.
Sá sem nýtir mánaðarlegan persónuafslátt sinn 100% vegna lífeyrisgreiðslna fær 72.492 kr. hærri lífeyrisgreiðslu inn á reikninginn sinn.

Heimilt er að nýta persónuafslátt maka. Einnig látins maka í allt að 9 mánuði frá andlátsmánuði.

Meira um skattamál á skatturinn.is

Viðmiðunarfjárhæð fyrir eingreiðslu séreignar breytist í hlutfalli við vísitölu neysluverðs í janúar ár hvert og er 1.918.732 kr. fyrir árið 2026. Fjárhæðin gildir um frjálsa séreign vegna örorku og bundna séreign vegna aldurs. Einnig um tilgreinda séreign vegna örorku og aldurs.

Það er frjálst að taka séreign út um leið og útgreiðslureglur leyfa, en almennt er ekki skattalega hagkvæmt að taka út séreign til þess eins að færa yfir á annað sparnaðarform. Ástæðan er sú að hvorki er greiddur fjármagnstekjuskattur af ávöxtun séreignar né erfðafjárskattur við fráfall. Auk þess er ekki hægt að ganga að séreign vegna fjárhagslegra skuldbindinga líkt og gildir um flestar aðrar eignir.

Það er hins vegar skynsamlegt að skoða hvort breyta ætti um fjárfestingarleið, þ.e. flytja séreignina í áhættuminni leið, ef við á.

Þó er um að gera að taka skerðanlega séreign út áður en greiðslur hefjast frá Tryggingastofnun, sumir kjósa jafnvel að lifa á skerðanlegri séreign um tíma áður en greiðslur frá TR hefjast.

Inneign getur hækkað/lækkað í samræmi við breytingu á gengi sjóðsins frá þeim degi sem sótt er um þar til útgreiðslur eiga sér stað.

Sé sjóðfélagi í Ævilínu flyst inneign hans í áhættuminnstu leiðina þ.e. í Frjálsa 3 þegar ein útgreiðsla hefur átt sér stað. Iðgjöld sem berast eftir að útgreiðsla er hafin, bókast í Frjálsa 3.

Þegar erfðaeign er flutt yfir á lífeyrissparnað erfingja er henni ráðstafað í Ævilínu samkvæmt aldri erfingja, nema erfingi hafi átt inneign fyrir í annarri fjárfestingarleið, þá er erfðaeign flutt í þá fjárfestingarleið. Í tilfellum Ævilínu, flyst inneign hans í áhættuminnstu leiðina, þ.e. Frjálsa 3, þegar ein útgreiðsla hefur átt sér stað.