Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.
Frjálsa lífeyrissjóðnum er umhugað um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Persónuvernd einstaklinga skiptir sjóðinn miklu máli og er lögð sérstök áhersla á að persónuupplýsingar séu unnar með lögmætum, sanngjörnum og gagnsæjum hætti.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn útvistar eignastýringu og daglegum rekstri sjóðsins, að undanskilinni framkvæmdastjórn, til Arion banka á grundvelli samnings við bankann. Nær öll vinnsla persónuupplýsinga fer því fram hjá Arion banka.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Arion banki koma fram sem sameiginlegir ábyrgðaraðilar á þeim vinnslum sem Arion banki gerir f.h. sjóðsins. Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga f.h. Frjálsa, þ.m.t. um tilgang og lagagrundvöll vinnslu, varðveislutíma og réttindi einstaklinga, er að finna í persónuverndaryfirlýsingu Arion banka.
Persónuverndaryfirlýsingin tekur til allra sjóðfélaga sjóðsins og annarra sem kunna að hafa samband við Frjálsa lífeyrissjóðinn.