Mínar síður
Lífeyrissparnaður
SkyldulífeyrissparnaðurViðbótarlífeyrissparnaðurTilgreind séreignSkipting ellilífeyrisSkipting séreignarFjárfestingarleiðir
Útgreiðslur
EftirlaunÖrorkulífeyrirMakalífeyrirBarnalífeyrirErlendir ríkisborgarar
Rekstur sjóðsins
LykilupplýsingarÁvöxtunEignasamsetningÁrsfundargögnÁrsreikningarVerðskrá Frjálsa

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.

Lán
Lán til sjóðfélagaLánareglurVaxtaþróunVerðskráBreytingar á láni
Þjónusta við sjóðfélaga
RáðgjöfArion appiðNýliðarUmsóknirAlgengar spurningar
Launagreiðendur
Greiðsla iðgjaldaSjálfstætt starfandiSkuldleysisvottorð

Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.

Starfsemi
Saga FrjálsaStjórnÁbyrgar fjárfestingarSamningur um rekstur og eignastýringu
Regluverk
SamþykktirReglur og stefnurPersónuverndFyrirvararVefkökur
Útgefið efni
FréttirGreinarSkýrslurEfni birt í fjölmiðlum

Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.

Viltu gerast sjóðfélagi?

Það tekur örstutta stund að ganga frá umsókn

Sækja um viðbótarlífeyrissparnaðSækja um skyldulífeyrissparnað
Þjónusta

Símatími alla virka daga
milli klukkan 10-12 og 13-15
+354 444 6090
frjalsi@frjalsi.is

Styttu þér leið
LánRáðgjöfSkyldulífeyrissparnaðurViðbótarsparnaðurLaunagreiðendur
Útgreiðslur
EftirlaunÖrorkulífeyrirMakalífeyrirBarnalífeyrir
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedin

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

Borgartúni 19, 105 Reykjavík |

Kennitala 600978-0129 |

frjalsi@frjalsi.is

FyrirvararStillingar fótspora
  1. Lífeyrissparnaður
  2. ▸
  3. Yfirlit lífeyrissparnaðar
  4. ▸
  5. Skipting ellilífeyris

Skipt­ing elli­lífeyris

Hjónum og sambúðaraðilum, bæði núverandi og fyrrverandi, er heimilt en ekki skylt að gera samninga sín á milli um skiptingu ellilífeyris.

Landslag - tvö rauð hús

Þrjár leiðir eru færar

Skipting getur að hámarki verið 50% og þarf að vera gagnkvæm og jöfn, sem þýðir að hjón/sambúðarfólk skuli veita hinu, sama hlutfall réttinda/greiðslna sinna. Tekjulægri fær þá meira en ella og tekjuhærri minna en hann hefði annars fengið. Skiptingin gildir um ellilífeyri úr samtryggingu/bundinni séreign, úr lífeyrissjóðum sjóðfélaga og maka, hægt er að skoða heildarstöðu lífeyrisréttinda úr öllum lífeyrissjóðum inn á Mínum síðum og lífeyrisgattin.is. Nánar um bundna séreign neðar.*

Samningar um skiptingu ellilífeyris hafa ekki áhrif á önnur réttindi í lífeyrissjóðum, s.s. til örorku-, maka- og barnalífeyris.

Skipting ellilífeyrisréttinda

Markmið skiptingar er almennt að jafna heildarstöðu sjóðfélaga og maka til ellilífeyris. Eftir því sem réttindamunur er meiri, þykir almennt ríkari ástæða til skiptingar. En fleira getur komið til, aldursmunur getur haft áhrif á ákvörðun og sumir velta fyrir sér lífslíkum m.a. byggt á heilsufari og erfðum. Dæmi um annað sem getur haft áhrif á ákvarðanatöku er ævilangur makalífeyrir, skattahagræði og mögulegar greiðslur TR.

Hægt er að skipta áunnum réttindum og/eða framtíðarréttindum.

A. Skipting áunninna ellilífeyrisréttinda:
Sækja þarf um skiptingu áunninna réttinda fyrir 65 ára aldur og áður en lífeyristaka hefst. Aðeins í boði ef sýnt hefur verið fram á að sjúkdómar eða heilsufar dragi ekki úr lífslíkum, því þarf heilbrigðisvottorð beggja aðila, fyllt út af lækni, að fylgja samningi. Nær aðeins til ellilífeyrisréttinda sem aflað hefur verið í hjúskap, óvígðri sambúð eða staðfestri samvist. Skipting helst óbreytt komi til skilnaðar eða sambúðarslita og ekki er hægt að segja upp samningi.

B. Skipting framtíðar ellilífeyrisréttinda:
Sækja má um skiptingu framtíðarréttinda áður en lífeyristaka hefst, en ekki þarf að sækja um fyrir ákveðinn aldur. Skipting helst óbreytt komi til skilnaðar eða sambúðarslita, en hægt að segja upp með samþykki beggja aðila og allra lífeyrissjóða. Hefji sjóðfélagi og/eða maki greiðslur í aðra sjóði bera þau ábyrgð á að upplýsa sjóðina um skiptinguna.

C. Skipting ellilífeyrisgreiðslna:
Hægt er að skipta ellilífeyrisgreiðslum hafi ellilífeyrisréttindum ekki þegar verið skipt.
Sækja má um skiptingu ellilífeyrisgreiðslna þegar ellilífeyrisgreiðslur hefjast eða síðar. Samningar sem þessir eru almennt ekki gerðir í óvissu og eiga sérlega vel við ef tekjuhærri aðili dvelur á hjúkrunarheimili. Við skiptingu er ekki horft til sambúðartíma. Hægt er að segja upp samningi en uppsögn annars aðila er fullnægjandi. Samningur fellur úr gildi við andlát þess sem fyrr fellur frá og því er um að ræða tímabundna ráðstöfun.

*Ef tekjuhærri aðili er í Erfanlegu leiðinni og bundin séreign stór hluti af hans ellilífeyri myndi tekjulægri eignast meiri erfanlegan ellilífeyri við skiptingu en fá minni erfðaséreign við andlát, en gerst hefði án skiptingar. Sveigjanleiki í útgreiðslum til eftirlifandi maka yrði minni þar sem þrengri útgreiðslureglur gilda um ellilífeyri en erfðaséreign. Ef um stjúpbörn er að ræða getur skipting bundinnar séreignar jafnframt haft áhrif á skiptingu erfðaséreignar til barna. Mikilvægt er að aðilar átti sig á áhrifum skiptingar á útgreiðslur og erfanleika áður en skipting er gerð og taki upplýsta ákvörðun.

Samanburður leiða

Skipting áunninna
ellilífeyrisréttinda

Skipting framtíðar
ellilífeyrisréttinda

Skipting
ellilífeyrisgreiðslna

Hverju er skipt?

Samtryggingu/bundinni séreign, úr öllum lífeyrissjóðum aðila.

Samtryggingu/bundinni séreign, úr lífeyrissjóðum sem aðilar óska eftir.

Samtryggingu/bundinni séreign, úr lífeyrissjóðum sem aðilar óska eftir.

Hvaða tímabil?

Nær til ellilífeyrisréttinda sem þegar hefur verið aflað við gerð samnings, á meðan aðilar hafa verið í hjúskap, óvígðri sambúð eða staðfestri samvist.

Nær til ellilífeyrisréttinda sem aflað er frá gerð samnings.

Nær til ellilífeyrisgreiðslna frá gerð samnings og til andláts.

Hvenær sótt um?

Fyrir 65 ára aldur og áður en lífeyristaka hefst.

Áður en lífeyristaka hefst.

Þegar lífeyristaka hefst, eða síðar.

Hvaða eyðublöð/fylgigögn?

Samningur um skiptingu ellilífeyrisréttinda. Hjónavígslu-, sambúðar- eða hjúskaparsöguvottorð. Heilbrigðisvottorð.

Samningur um skiptingu ellilífeyrisréttinda.

Samningur um skiptingu ellilífeyrisgreiðslna.

Er hægt að segja upp?

Nei.

Já, en eingöngu með samþykki beggja aðila og allra lífeyrissjóða.

Já, uppsögn annars aðila er fullnægjandi.

Hvað gerist við skilnað?

Endanleg ráðstöfun, skipting helst óbreytt.

Endanleg ráðstöfun, skipting helst óbreytt, en hægt að segja upp.

Tímabundin ráðstöfun, fellur ekki sjálfkrafa úr gildi við skilnað en hægt að segja upp.

Hvað gerist við andlát?

Endanleg ráðstöfun, skipting helst óbreytt.

Endanleg ráðstöfun, skipting helst óbreytt ævilangt.

Tímabundin ráðstöfun, samningur fellur þegar úr gildi.

Er hagkvæmt að gera samning um skiptingu?

Samningur er gerður í óvissu um útkomu, en vissu um jafnari hlut aðila. Falli tekjuhærri fyrr frá, var samningur hagkvæmur.

Samningur er gerður í óvissu um útkomu, en vissu um jafnari hlut aðila. Falli tekjuhærri fyrr frá, var samningur hagkvæmur.

Samningur er ekki gerður í óvissu um útkomu, ef tekjuhærri er t.d. á hjúkrunar¬heimili er samningur alla jafna hagkvæmur.