Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.
Í gildi frá 1. september 2026.
Frá júlí 2006 til 1. ágúst 2017 bauð Frjálsi lífeyrissjóðurinn sjóðfélögum að greiða í Tryggingaleiðina þar sem skylduiðgjaldi var ráðstafað að fullu í samtryggingu. Réttindaávinnsla Tryggingaleiðar miðast við að ellilífeyri sé greiddur út frá 67 ára aldri en heimilt er að flýta eða fresta töku lífeyris.
Sjóðfélagar sem hafa greitt í Tryggingaleiðina eiga geymd réttindi í tryggingadeild. Um þessi réttindi gilda samþykktir sjóðsins sem voru í gildi frá 1. júlí 2016 til 1. ágúst 2017.
Lífeyrissjóður Bolungarvíkur sameinaðist Frjálsa lífeyrissjóðnum 1. janúar 2006 og Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands sameinaðist Frjálsa 1. janúar 2026. Fyrrum sjóðfélagar þessara sjóða eiga því geymd réttindi í tryggingadeild Frjálsa. Um þessi réttindi gilda samþykktir Lífeyrissjóðs Bolungarvíkur frá 2005 og samþykktir Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands frá 2025.
Lífeyrissjóður bænda (LSB) sameinaðist Frjálsa lífeyrissjóðnum 1. júlí 2026. Við sameininguna færast eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga tímabundið frá Lífeyrissjóði bænda í sérstaka tryggingadeild hjá Frjálsa, Tryggingadeild LSB. Í seinna skrefi sameiningar verður Tryggingadeild LSB sameinuð tryggingadeild Frjálsa. Um áunnin réttindi sjóðfélaga í tryggingadeild LSB gilda samþykktir LSB eins og þær standa við sameiningu við Frjálsa og samþykktir Frjálsa taka til reksturs deildarinnar eftir því sem við á.