15.10.2026

Nú er hægt að ráð­stafa sér­eignar­sparnaði inn á hús­næð­is­lán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026. Lögin tryggja varanlega heimild til að nýta viðbótarlífeyrissparnað skattfrjálst til að greiða niður höfuðstól húsnæðislána. Heimildin gildir í allt að 120 mánuði samtals, en nýting hennar þarf ekki að vera samfelld.

Breyting á umsóknarferli

Frá og með 1. október 2026 er sótt um úrræðið á þjónustuvef Skattsins en ekki á leidretting.is eins og áður.

Hverjir geta nýtt úrræðið?

Til að geta nýtt úrræðið þarft þú að:

  • eiga að minnsta kosti 30% eignarhlut í húsnæðinu

  • vera með lögheimili í húsnæðinu

  • vera með lán sem er tryggt með veði í húsnæðinu

Sækja þarf um fyrir 1. desember til að nýta iðgjöld frá árinu 2026

Almenna reglan er að umsókn gildir um iðgjöld sem greidd eru eftir að umsókn berst.

Undantekning frá þeirri reglu gildir út árið 2026. Umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 gilda frá 1. janúar 2026, þannig að unnt er að nýta iðgjöld sem greidd hafa verið frá áramótum.

Hámarksfjárhæð

Fyrir árið 2026 er heimilt að ráðstafa allt að 500.000 kr. á einstakling skattfrjálst inn á húsnæðislán.

Hámarksfjárhæðin skiptist í eigið framlag og framlag launagreiðanda:

  • Eigið framlag: Allt að 4% af launum, að hámarki 333.000 krónur á ári.

  • Framlag launagreiðanda: Allt að 2% af launum, að hámarki 167.000 krónur á ári.

Heimildin gildir í allt að 120 mánuði samtals. Athugið að heimildin þarf ekki að nýtast samfellt og því getur liðið lengri tími en 10 ár frá fyrstu nýtingu þar til hámarkstímabili úrræðisins er náð.

Fjárhæðirnar taka breytingum í upphafi hvers árs í samræmi við vísitölu neysluverðs.

Við kaup á fyrstu íbúð

Áfram er í boði sambærilegt úrræði fyrir kaup á fyrstu íbúð. Um það gilda aðrar reglur og skilyrði en um almenna úrræðið sem fjallað er um hér.

Sækja um

Sótt er um á þjónustuvef Skattsins: Séreignarsparnaður – ráðstöfun inn á húsnæðislán

Athugið að hjón og sambúðarfólk þurfa hvort um sig að sækja um.

Þeir sem áður nýttu almenna úrræðið í gegnum leidretting.is þurfa að sækja um að nýju ef þeir vilja halda áfram að nýta úrræðið. Fyrri nýting telst með í 120 mánaða hámarkstímabili úrræðisins, en heimilt er að nýta þann ráðstöfunartíma sem eftir er.

Frekari upplýsingar

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira