02.04.2019

Breyt­ing á fyrir­komulagi framkvæmda­stjórnar og innri endur­skoðun­ar

Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins hefur ákveðið í samráði við rekstraraðila sjóðsins, Arion banka, að breyta fyrirkomulagi framkvæmdastjórnar frá og með 1. apríl 2019. Í stað þess að rekstraraðili tilnefni starfsmann sinn sem framkvæmdastjóra sjóðsins, eins og verið hefur frá stofnun, þá mun framkvæmdastjóri Frjálsa vera starfsmaður sjóðsins og ráðinn af stjórn hans. Af því tilefni hefur verið undirritaður nýr rekstrarsamningurá milli Frjálsa og rekstraraðila.

Ástæða þessara breytinga er m.a að skerpa á sjálfstæði sjóðsins og framkvæmdastjóra gagnvart rekstraraðila og minnka orðsporsáhættu sem rekstrarfyrirkomulagið getur haft í för með sér. Samið hefur verið við Arnald Loftsson um að hann verði áfram framkvæmdastjóri Frjálsa og er ráðningarsambandi hans við rekstraraðila lokið.

Innri endurskoðun Frjálsa hefur verið í höndum innri endurskoðunar rekstraraðilans. Samhliða breytingum á fyrirkomulagi framkvæmdastjórnar hefur stjórn sjóðsins ákveðið að fela innri endurskoðun sjóðsins endurskoðunarfélagi. Vinnur stjórn sjóðsins að því í samráði við endurskoðunarnefnd að semja við endurskoðunarfélag um að sjá um innri endurskoðun sjóðsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira