Sameining Lífeyrissjóðs bænda og Frjálsa

Frjálsi er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga.
Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldulífeyrissparnaðar síns í erfanlega séreign.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður sem var stofnaður árið 1978.

Stjórnir Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs bænda hafa undirritað samning um sameiningu lífeyrissjóðanna.
Sameiningin verður lögð fram til staðfestingar á ársfundi Lífeyrissjóðs bænda sem haldinn verður 19. júní og er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á breytingum á samþykktum sjóðanna.
Stærðarhagkvæmni
Lækkandi kostnaður á hvern sjóðfélaga: með stærri sjóði dreifist kostnaður á fleiri einstaklinga, sem leiðir til lægri rekstrarkostnaðar á hvern sjóðfélaga.
Betri viðnámsþróttur gegn utanaðkomandi áföllum: stærri sjóður hefur meiri fjárhagslegan sveigjanleika og getur betur brugðist við óvæntum breytingum.
Öflugri lífeyrissjóður
Sterkari fjárfestingargeta: sameining sjóðanna getur leitt til betri dreifingar á fjárfestingum og hærri ávöxtunar til lengri tíma.
Traust og öryggi
Langtímaöryggi fyrir sjóðfélaga: sameining styrkir stöðu sjóðsins til framtíðar.
Aukinn sveigjanleiki við útgreiðslur
Framtíðariðgjöldum sjóðfélaga verður ráðstafað í Frjálsu leiðina svo hluti af skylduiðgjaldi í lífeyrissjóð fer í frjálsa séreign séreign og hluti í samtryggingu. Séreignin er laus til útgreiðslu eftir hentugleika frá 60 ára aldri. Viðmiðunaraldur eftirlauna úr samtryggingu er 70 ára en flýta má töku lífeyris til 60 ára eða fresta til allt að 80 ára.
Val á fjárfestingarleiðum fyrir séreign
Sjóðfélagar geta valið fjárfestingarleið fyrir séreign sína. Frjálsi býður upp á fjórar misáhættumiklar fjárfestingarleiðir fyrir séreign sem sjóðfélagar geta valið um. Flestir velja Ævilínu en þá færist inneign sjálfkrafa á milli fjárfestingarleiða 1-3. Sjóðfélagar geta þó alltaf breytt um fjárfestingarleið.
Frjálsi er fullgildur lífeyrissjóður stofnaður árið 1978 af Fjárfestingarfélagi Íslands. Sjóðurinn er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga. Frjálsi tekur einnig við viðbótarsparnaði sem rennur óskipt í séreign sjóðfélaga. Frjálsi hefur ávallt verið opinn öllum sem í hann vilja greiða og án skylduaðildar.
Frjálsi hefur frá upphafi útvistað öllum rekstri og eignastýringu til fjármálafyrirtækis. Arion banki og forverar hafa annast þessa þjónustu frá árinu 2001.
Núverandi rekstrarsamningur við Arion banka tryggir hagkvæmni í rekstri og felur í sér lækkandi kostnað í takt við vöxt sjóðsins. Með þessu móti nýtur Frjálsi sérfræðikunnáttu og stöðugleika í rekstri, samhliða vaxandi ávinningi fyrir sjóðfélaga.
Í Frjálsa geta eingöngu sjóðfélagar boðið sig fram til setu í stjórn. Kosning fer fram rafrænt á viku tímabili fyrir ársfund og er öllum sjóðfélögum heimilt að kjósa.
Atkvæðisréttur í sjóðnum byggist á stöðu séreignar um næstliðin mánaðarmót og hlutfallslegum réttindum í samtryggingu um næstliðin áramót. Þannig endurspeglar atkvæðisréttur stöðu hvers sjóðfélaga innan sjóðsins.
Sjóðfélögum Frjálsa stendur til boða að taka verðtryggð og óverðtryggð lán hjá sjóðnum til allt að 40 ára með veði í íbúðarhúsnæði.
Sjóðfélagar LSB sem greitt hafa í Frjálsa á árinu 2026 munu greiða framtíðariðgjöld í sömu leið og þeir voru í hjá Frjálsa fyrir fyrra skref sameiningarinnar.
Áunnin örorku og makalífeyrisréttindi verða óbreytt.
Sjóðfélagar LSB sem voru orðnir sjóðfélagar fyrir árslok 1983 og skiptu ekki réttindum sem þeir áttu í sjóðnum í árslok 1983 með maka sínum halda rétti til ævilangs makalífeyris. Rétturinn miðast þó einungis við áunnin réttindi í sjóðnum í árslok 1983 án framreiknings.
Ef þú hefur gert samning um að ráðstafa hluta iðgjalds í tilgreinda séreign mun sú ráðstöfun falla niður þar sem hjá Frjálsu leiðinni fer 6,75% í frjálsa séreign í stað 3,5% í tilgreinda. Frjálsi séreign fylgir enn meiri sveigjanleiki en tilgreindri séreign þar sem útgreiðslureglur eru rýmri.
Iðgjöld sjóðfélaga (15,5%) sem berast í Lífeyrissjóð bænda fara að öllu leyti í svokallaða samtryggingu nema sjóðfélagar hafi sérstaklega óskað eftir að ráðstafa 3,5% iðgjaldi í tilgreinda séreign. Í Frjálsu leiðinni fer 6,75% af launum í frjálsa séreign og 8,75% í samtryggingu. Séreign er erfanleg og henni fylgir aukinn sveigjanleiki þegar kemur að útgreiðslum sparnaðarins.
Sameinaður sjóður mun leggja áherslu á góða þjónustu og ráðgjöf og að sjóðfélagar séu vel upplýstir um réttindi sín og valkosti.
Hægt verður að:
Fá aðgengi að lífeyrisþjónustu alla virka daga, í gegnum netspjall, síma og tölvupóst.
Óska eftir fundi með lífeyrisráðgjöfum hvort sem er í gegnum fjarfundi, símtal eða staðfund.
Nota stafrænar þjónustuleiðir í gegnum Arion appið og Mínar síður Frjálsa.
Sameinaður sjóður verður til húsa í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.
Samkvæmt ársreikningum sjóðanna er beint kostnaðarhlutfall 0,19% hjá Frjálsa en 0,61% hjá LSB. Kostnaðarhlutfallið mun því koma til með að lækka töluvert hjá sjóðfélögum LSB við sameiningu.
Sameiningin er liður í því að styrkja starfsemi sjóðanna og tryggja betri þjónustu og öryggi fyrir sjóðfélaga til framtíðar.
Eftir sameiningu verður hægt að breyta um fjárfestingarleið í Arion appinu og á Mínum síðum á vef Frjálsa.
Frjálsi býður upp á fjórar misáhættusamar fjárfestingarleiðir fyrir séreign sem sjóðfélagar geta valið um. Flestir sjóðfélagar velja Ævilínu, en þá færist inneignin sjálfkrafa á milli fjárfestingarleiða 1-3.
Framtíðariðgjöldum sjóðfélaga LSB verður ráðstafað í Frjálsu leiðina og sjóðfélagar fara í Ævilínu. Sjóðfélagar geta þó alltaf flutt séreign á milli leiða og breytt í hvaða leið framtíðariðgjöldum er ráðstafað.
Stefnt er að því að sameina sjóðina eins fljótt og mögulegt er. Sameiningin er þó háð því að:
Sjóðfélagar samþykki breytingar á samþykktum sjóðsins og sameininguna á ársfundi 19. júní.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið staðfesti breytingar á samþykktum sjóðsins.
Samkeppniseftirlitið heimili sameininguna.
Þjónusta við sjóðfélaga og launagreiðendur verður óbreytt fram að sameiningu, þ.e. áfram hjá Lífeyrissjóði bænda. Launagreiðendur verða upplýstir um hvenær hefja eigi greiðslur inn á iðgjaldareikning Frjálsa lífeyrissjóðsins, þegar þar að kemur.
Þjónusta við sjóðfélaga og launagreiðendur verður óbreytt fram að sameiningu, þ.e. áfram hjá Lífeyrissjóði bænda. Launagreiðendur verða upplýstir um hvenær hefja eigi greiðslur inn á iðgjaldareikning Frjálsa lífeyrissjóðsins, þegar þar að kemur.
Í Arion appi og Netbanka: Samanlögð réttindi í báðum deildum birtast í einni tölu en ekki sundurliðuð réttindi.
Á stöðuskjá og á pdf yfirlitum á Mínum síðum (sjóðfélagavef): Sundurliðuð réttindi í báðum deildum birtast í tveimur tölum.