
Valfrelsi og mismunandi fjárfestingarstefnur sjóðfélaga Frjálsa
Lífeyrissjóðir hér á landi sem taka á móti skyldulífeyrissparnaði bjóða upp á ólíkar leiðir til þess að ráðstafa 15,5% skylduiðgjaldi. Munurinn liggur í hvernig iðgjaldinu er skipt, þ.e. hvort öllu skylduiðgjaldinu sé ráðstafað í samtryggingu, eða hluta þess sé ráðstafað í samtryggingu og hluta í erfanlega séreign. Hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum hefur frá upphafi verið lögð áhersla á að sjóðfélagar geti valið sér þá leið sem þeim hentar best. Kostir séreignar er að hún erfist að fullu og býður upp á valfrelsi og sveigjanleika varðandi fjárfestingarleiðir og útgreiðslur. Aftur á móti með greiðslu iðgjalda í samtryggingu ávinna sjóðfélagar sér mikilvæg tryggingaréttindi, s.s. ævilöng eftirlaun og örorkulífeyri en iðgjöldin erfast ekki.