Hús við fjöru

Inn­lendar sér­hæfð­ar fjar­festingar

Frjálsi lífeyrissjóðurinn leggur áherslu á gagnsæi og að sjóðfélagar hafi greiðan aðgang að upplýsingum um starfsemi sjóðsins. Á vefsíðu Frjálsa má finna lykilupplýsingar með helstu upplýsingum um rekstur og fjárfestingar. Í þessari umfjöllun verður farið yfir hvernig sjóðurinn hefur nálgast uppbyggingu á innlendum sérhæfðum fjárfestingum ásamt því að stiklað verður á stóru um einstakar fjárfestingar.

Sem langtímafjárfestir hefur Frjálsi bæði svigrúm og möguleika til að byggja upp vel dreift eignasafn til lengri tíma. Í því samhengi gegna innlendar sérhæfðar fjárfestingar mikilvægu hlutverki í heildarsamsetningu eignasafnsins, oft byggir ávöxtun þeirra á öðrum drifkröftum en til að mynda hefðbundnir skráðir fjármálagerningar og tengjast oft síður skammtímasveiflum á fjármálamörkuðum.

Með sérhæfðum fjárfestingum er yfirleitt átt við fjárfestingar sem eru frábrugðnar hefðbundnum hlutabréfa - og skuldabréfafjárfestingum að því leyti að þær eru oft óskráðar, með lengri binditíma og takmarkaðan seljanleika til skemmri tíma. Aðgengi fagfjárfesta, svo sem lífeyrissjóða, að þessum eignaflokki hefur bæði verið í formi beinnar fjárfestingar eða óbeinnar fjárfestingar í gegnum ýmiss konar form af sérhæfðum sjóðum.

Lesa grein

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
2. júní 2026

Innlendar sérhæfðar fjarfestingar

Frjálsi lífeyrissjóðurinn leggur áherslu á gagnsæi og að sjóðfélagar hafi greiðan aðgang að upplýsingum um starfsemi sjóðsins. Á vefsíðu Frjálsa má finna lykilupplýsingar með helstu upplýsingum um rekstur og fjárfestingar. Í þessari umfjöllun verður farið yfir hvernig sjóðurinn hefur nálgast uppbyggingu á innlendum sérhæfðum fjárfestingum ásamt því að stiklað verður á stóru um einstakar fjárfestingar.

Lesa meira
24. mars 2026

Erlendar sérhæfðar fjárfestingar

Erlendar sérhæfðar fjárfestingar hafa á síðustu árum orðið veigamikill hluti af eignastýringu lífeyrissjóða. Sem langtímafjárfestir, sem í flestum tilfellum hefur stöðugt innstreymi iðgjalda og skuldbindingar sem ná yfir marga áratugi, hefur lífeyrissjóður bæði svigrúm og skyldu til að byggja upp vel dreift eignasafn sem skilar stöðugri raunávöxtun til langs tíma.

Lesa meira
28. maí 2025

Innlendar sérhæfðar fjárfestingar

Sérhæfðar fjárfestingar eru fjárfestingar sem falla ekki undir hefðbundna fjárfestingarkosti eins og skráð hlutabréf og skuldabréf. Þessar fjárfestingar eru oft í formi fjárfestinga í gegnum óskráða sjóði, sem hafa takmarkaðan seljanleika til skemmri tíma og fela í sér langtímabindingu.

Lesa meira