
Uppbygging og árangur erlendrar hlutabréfastýringar Frjálsa
Eftir að fjármagnshöft voru afnumin árið 2017 hefur Frjálsi lagt mikla áherslu á að auka vægi erlendra eigna og breidd í eignasafni og eru erlendar eignir mikilvægur þáttur í áhættudreifingu sjóðsins. Markmið um vægi erlendra eigna í fjárfestingarstefnu sjóðsins hefur þannig hækkað á síðustu árum eins og sést á mynd 1. Til að mynda hefur markmið tryggingardeildarinnar í erlendum eignum hækkað úr 13% árið 2017 í 30% árið 2021. Þá er vægi erlendra eigna í séreignardeildum sjóðsins mismunandi en sjóðfélögum er frjálst að velja á milli leiða eftir því hvaða fjárfestingarstefna hentar hverjum og einum