
Sérhæfðar fjárfestingar
Frjálsi leggur áherslu á gagnsæja og góða upplýsingagjöf til sjóðfélaga en sjóðurinn birtir t.d. rekstrarsamning sjóðsins við rekstraraðilann, Arion banka. Framkvæmd hluthafastefnu Frjálsa er jafnframt aðgengileg á vefsvæði sjóðsins ásamt því að Frjálsi heldur úti Lykilupplýsingarsíðu þar sem markmiðið er stöðugt að bæta aðgengi sjóðfélaga að lykilupplýsingum úr starfsemi sjóðsins. Frjálsi var fyrsti lífeyrissjóðurinn sem ákvað eftir efnahagshrunið 2008 að birta sundurliðun á einstökum fjárfestingum á vef sjóðsins og er sundurliðunin uppfærð ársfjórðungslega. Liður í þessari vegferð er neðangreind umfjöllun um sérhæfðar fjárfestingar sjóðsins.