
Erlendar sérhæfðar fjárfestingar
Sérhæfðar fjárfestingar eru fjárfestingar sem falla ekki undir hefðbundna fjárfestingarkosti eins og skráð hlutabréf og skuldabréf. Þessar fjárfestingar eru oft í formi fjárfestinga í gegnum óskráða sjóði, sem hafa takmarkaðan seljanleika til skemmri tíma og fela í sér langtímabindingu. Ábati þeirra kemur oft fram á síðari stigum líftímans, og geta þær skilað lágri eða neikvæðri ávöxtun í upphafi. Því er mikilvægt að meta árangur slíkra fjárfestinga yfir lengra tímabil fremur en frá ári til árs.