Er of seint að fá sér kaffi núna?

Er of seint að fá sér kaffi nún­a?

Hjörleifur Arnar Waagfjörð, forstöðumaður eignastýringar fagfjárfesta hjá Arion banka, skrifaði á dögunum létta og aðgengilega grein um lífeyrismál í Viðskiptamoggann. Þar varpar Hjörleifur kastljósinu á viðbótarlífeyrissparnað og bendir réttilega á það sé aldrei of seint að hefja slíkan sparnað. Hjörleifur útlistar helstu eiginleika þessa sparnaðarforms sem er frábrugðið öðrum lífeyrissparnaði að því leytinu til að sjóðfélagi þarfsjálfur, að eigin frumkvæði, að stofna til hans. Því fyrr sem það er gert, þeim mun betra.

Er of seint að fá sér kaffi núna?

Á myrkum fimmtudegi, hálf fimm síðdegis á síðustu mánuðum ársins, stendur miðaldra maður við kaffivélina og spyr sig þessarar áleitnu spurningar úr samnefndu lagi okkar ástkæra tónlistarmanns, hans heitinnar hátignar Prins Póló. En hvað þá um viðbótarlífeyrissparnað, er of seint fyrir mig að byrja núna?

Viðbótarlífeyrisparnaður

Á lífsleiðinni tökum við öll allnokkrar stórar ákvarðanir. Sumar eru mældar í peningum eða eignum á borð við fasteignir eða sparnað ýmiss konar. Aðrar snerta þætti sem hafa djúpstæð áhrif á líf okkar, svo sem fjárfestingu í menntun, fjölskyldu, persónulegum tengslum eða eigin heilbrigði.

Segja má að viðbótarlífeyrissparnaður feli í sér alla ofangreinda þætti enda um að ræða fjárfestingu í fjárhagslegu heilbrigði okkar í víðum skilningi. Mikilvægt er að átta sig á því að fólk ákveður sjálft að hefja þessa tegund sparnaðar – það gerist ekki af sjálfu sér. Sparnaðurinn er settur saman úr framlagi launþega, að hámarki 4% af launum, og framlagi atvinnurekanda sem er 2% samkvæmt flestum kjarasamningum. Ekki er tekinn skattur af sparnaðinum við innborgun en við útborgun er greiddur tekjuskattur. Sparnaðurinn er erfanlegur, útgreiðslur eru sveigjanlegar við starfslok og að auki stendur einstaklingum nú til boða að nýta sparnaðinn skattfrjálst við útborgun á fyrstu fasteign eða í formi innborgunar á húsnæðislán.

Áhrif tímans

Viðbótarlífeyrissparnaður er sparnaður til lengri tíma og skynsamlegt fyrir einstaklinga að byrja sem allra fyrst til að ávöxtun skili sem hagstæðastri niðurstöðu, til að hámarka viðbótarframlag frá launagreiðanda, eiga kost á auknum sveigjanleika og minna launatapi við starfslok.

En hefji einstaklingar af einhverjum sökum seint að leggja fyrir er engu að síður til mikils að vinna. Tökum dæmi um 45 ára einstakling sem hefur 850.000 kr. í laun á mánuði til 70 ára aldurs. Hann ákveður að hefja greiðslur í viðbótarlífeyrisparnað með greiðslu sem nemur 4% af launum og fær 2% mótframlag frá vinnuveitanda, ávöxtun er 3,5% á ári. Við 70 ára aldur ætti viðkomandi einstaklingur um 24,3 milljónir, þar sem greiðslur hans nema 10,2 milljónum króna, framlag launagreiðanda nemur um 5,1 milljónum króna og ávöxtun um 9 milljónum króna. Svo getur hver sem þetta les reiknað samsvarandi áætlun út frá sínum forsendum í aldri og tekjum, til dæmis á heimasíðu Frjálsa lífeyrisjóðsins eða Arion banka.

Hvert er þá rétta svarið?

Kaffi er að mínu mati gjöf frá Guði en öllu óljósara er þó í huga mér hvenær dreypa megi á síðasta bolla dagsins. Hvert og eitt okkar þarf sennilega bara að gera það upp við sig.

Hvað viðbótarsparnað varðar er niðurstaðan hins vegar skýr – það er aldrei of seint að byrja að leggja fyrir þrátt fyrir að einhver ár hafi þegar liðið á vinnumarkaði. Því langar mig að hvetja þau, sem ekki hafa nýtt sér viðbótarsparnað, til að kynna sér þetta sparnaðarform og hefja sparnaðinn sem fyrst því að til mikils er að vinna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
2. júní 2026

Innlendar sérhæfðar fjarfestingar

Frjálsi lífeyrissjóðurinn leggur áherslu á gagnsæi og að sjóðfélagar hafi greiðan aðgang að upplýsingum um starfsemi sjóðsins. Á vefsíðu Frjálsa má finna lykilupplýsingar með helstu upplýsingum um rekstur og fjárfestingar. Í þessari umfjöllun verður farið yfir hvernig sjóðurinn hefur nálgast uppbyggingu á innlendum sérhæfðum fjárfestingum ásamt því að stiklað verður á stóru um einstakar fjárfestingar.

Lesa meira
24. mars 2026

Erlendar sérhæfðar fjárfestingar

Erlendar sérhæfðar fjárfestingar hafa á síðustu árum orðið veigamikill hluti af eignastýringu lífeyrissjóða. Sem langtímafjárfestir, sem í flestum tilfellum hefur stöðugt innstreymi iðgjalda og skuldbindingar sem ná yfir marga áratugi, hefur lífeyrissjóður bæði svigrúm og skyldu til að byggja upp vel dreift eignasafn sem skilar stöðugri raunávöxtun til langs tíma.

Lesa meira
28. maí 2025

Innlendar sérhæfðar fjárfestingar

Sérhæfðar fjárfestingar eru fjárfestingar sem falla ekki undir hefðbundna fjárfestingarkosti eins og skráð hlutabréf og skuldabréf. Þessar fjárfestingar eru oft í formi fjárfestinga í gegnum óskráða sjóði, sem hafa takmarkaðan seljanleika til skemmri tíma og fela í sér langtímabindingu.

Lesa meira