27.05.2015

Vel sótt­ur fræðslufund­ur um greiðsl­ur úr lífeyris­sparnaði

Fræðslufundur um greiðslur úr lífeyrissparnaði, sem haldinn var í Arion banka miðvikudaginn 20. maí sl. var mjög vel sóttur en 160 manns mættu á fundinn. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá hve mikill áhugi var meðal fundargesta á viðfangsefninu.

Markmið fundarins var að kynna reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar, skattalega meðferð lífeyrissparnaðar og samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun. Talsverðar umræður sköpuðust meðal fundargesta í lok fundar, sem stóð í liðlega klukkustund.

Fyrirlesari var Helga Sveinbjörnsdóttir, sérfræðingur hjá Eignastýringu Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira