02.07.2019

Úr­ræði um ráð­stöf­un á viðbótar­sparnaði fram­lengt

Samþykkt hefur verið frumvarp þess efnis að heimilt verði að ráðstafa viðbótarsparnaði skattfrjálst inn á fasteignaveðlán og til húsnæðissparnaðar í 2 ár til viðbótar þ.e. til 30. júní 2021.

RSK birti nýverið fréttá vefsvæði sínu ásamt því að senda tölvupóst til þeirra sem eru að nýta sér úrræðið. Þar kemur fram að ef vilji er til að halda áfram að nýta sér úrræðið þá þurfi að skrá sig inn á www.leidretting.is og staðfesta áframhaldandi þátttöku í úrræðinu fyrir 30. september 2019.

Athugið að ef ráðstöfun er ekki framlengd fellur hún úr gildi frá og með 1. júlí 2019, þeir sem staðfesta framlengingu fyrir 30. september nk. fá þá greitt uppsafnaða inneign frá og með 1. júlí 2019 inn á lánið sitt en eftir 30. september virkjast ráðstöfun einungis aftur frá þeim mánuði þegar ný umsókn berst RSK og uppsöfnuð inneign er þá ekki greidd inn á lánið.

Heimildirnar eru enn háðar ákveðnum skilyrðum og hámörkum sem má kynna sér nánar á vef RSK í gegnum eftirfarandi hlekki:

Sækja um viðbótarsparnað

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira