14.07.2020

Þró­un fjármála­markaða frá ára­mótum

Óhætt er að segja að fyrstu sex mánuðir ársins 2020 hafa verið án hliðstæðu vegna heimsfaraldursins COVID-19. Heimsfaraldurinn hefur haft veruleg samfélags- og efnahagsleg áhrif í för með sér og flestir greiningaraðilar eru sammála um að einn mesti samdráttur á lýðveldistímanum sé yfirvofandi í kjölfar faraldursins.

Stiklað á stóru

Á óvissutímum líkt og þessum er vert að líta yfir farinn veg á fjármálamörkuðum. Innlendur hlutabréfamarkaður hefur, að miklu leyti, náð sér aftur á strik eftir sveiflukennda og mikla lækkun í mars. Úrvalsvísitala innlendra hlutabréfa hefur lækkað um tæp 1,5% frá áramótum miðað við 30. júní 2020. Innlendur skuldabréfamarkaður hefur haldið velli frá áramótum, þar sem ávöxtunarkrafa verðtryggðra og óverðtryggðra ríkisskuldabréfa hefur lækkað töluvert á tímabilinu. Ávöxtun óverðtryggðra ríkisskuldabréfa hefur verið á bilinu 5,5% til 9,3% en verðtryggðra á bilinu 3,6% til 13,0%.

Gengi íslensku krónunnar hefur gefið töluvert eftir frá áramótum en hún hefur veikst um rúm 14% á móti bæði evru og Bandaríkjadal. Erlendir verðbréfamarkaðir hafa einnig sótt í sig veðrið. Heimsvísitala hlutabréfa hefur lækkað um tæp 7% frá áramótum í grunnmynnt sinni Bandaríkjadal en athuga skal að í íslenskum krónum hefur hún hækkað um tæp 7%, vegna gengisveikingar íslensku krónunnar.

Ávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins miðað við 30. júní 2020

Ávöxtun fjárfestingarleiða Frjálsa lífeyrissjóðsins hefur sveiflast töluvert á fyrstu sex mánuðum ársins en nafnhækkun sjóðsins var á bilinu 5,2% til 6,9% og raunhækkun um 3,6% til 5,3%.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira