27.03.2018

Stjórn Frjálsa lífeyris­sjóðsins hef­ur sam­þykkt hlut­hafa­stefnu og stefnu um ábyrg­ar fjár­festingar

Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins hefur samþykkt hluthafastefnu og stefnu um ábyrgar fjárfestingar. Stefnurnar hafa verið gerðar aðgengilegar á vef sjóðsins og viljum við hvetja sjóðfélaga til að kynna sér þær vel. Hægt er að nálgast hluthafastefnuna með því að smella hérog stefnuna um ábyrgar fjárfestingar hér.

Markmið stefnanna er að skilgreina þær kröfur sem Frjálsi lífeyrissjóðurinn gerir að jafnaði til þeirra félaga sem hann fjárfestir í með tilliti til umhverfis-, félags- og stjórnarhátta. Í stefnunum er að finna skýringar á því hvernig sjóðurinn hyggst beita rétti sínum sem hluthafi til að hafa áhrif á stjórnun og stefnu félaga þar sem hann er hluthafi. Með þeim hætti stuðlar sjóðurinn að auknu gagnsæi og trúverðugri aðkomu sinni að umræddum félögum. Þannig gefur sjóðurinn til kynna hvers sjóðurinn væntir af félögunum og hvers þau megi vænta af sjóðnum sem hluthafa.

Í hluthafastefnunni er lögð áhersla á góða stjórnarhætti í félögum sem sjóðurinn á hlut í en í stefnu um ábyrgar fjárfestingar eru sett fram siðferðileg viðmið sjóðsins er varða umhverfis- og félagsleg málefni í sömu félögum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira