10.04.2018

Stjórn Frjálsa hef­ur orð­ið við fyrir­mæl­um FME

Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins (Frjálsi) hefur brugðist við niðurstöðum athugunar Fjármálaeftirlitsins (FME) vegna fjárfestingar sjóðsins í United Silicon og gert viðeigandi úrbætur. Fjárfestingarferli sjóðsins hefur verið lagað enn frekar að kröfum um gagnsæi og ásýnd vegna orðsporsáhættu, sér í lagi þegar rekstaraðili sjóðsins eða aðilar honum tengdir eru einnig haghafar að fjárfestingarverkefnum. Í því felst meðal annars að í ákveðnum tilvikum verði óskað eftir utanaðkomandi greiningum á fýsileika og áhættu fjárfestinga. Markmið breytinganna er að lágmarka orðsporsáhættu vegna útvistunar á rekstri sjóðsins til fjármálafyrirtækis. Slíkt rekstrarfyrirkomulag er við lýði hjá fimm öðrum lífeyrissjóðum og hefur að mati stjórnar Frjálsa átt drjúgan þátt í velgengni sjóðsins þá fjóra áratugi sem hann hefur starfað.

Stjórnin hefur einnig breytt starfsreglum sínum þannig að fundargerðir stjórnarfunda veiti gleggri heildarsýn yfir umræður á stjórnarfundum. Ástæða þykir til að leiða skýrt í ljós við ritun fundargerða að sjónarmið og hagsmunir lífeyrissjóðsins séu jafnan í fyrirrúmi við ákvarðanatöku.

FME telur að sá hluti fjárfestingarferlisins sem snýr að mati á orðsporsáhættu og skjalfestingu á forsendum og umræðum í tengslum við ákvarðanir stjórnar hafi ekki verið eðlilegur og heilbrigður. Stjórnin telur að í reynd hafi ekki skort á gagnrýna umræðu innan stjórnar í fjárfestingarferlinu. Hún gerir hins vegar ekki ágreining við FME um að hún hefði mátt taka meira tillit til þeirrar orðsporsáhættu sem fjárfestingunni var samfara og til þess að ritun fundargerða hefði mátt fanga betur umræður stjórnarfunda.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira