08.04.2025

Starf­semi Frjálsa ár­ið 2024

Góð ávöxtun og metfjöldi greiðandi sjóðfélaga

Rekstur Frjálsa gekk vel á árinu 2024, góð ávöxtun og metfjöldi greiðandi sjóðfélaga einkenndi árið. Ársreikningur sjóðsins fyrir árið 2024 liggur nú fyrir og er aðgengilegur hér. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:

  • Hrein eign Frjálsa nam 532,8 milljörðum kr. og stækkaði sjóðurinn um 78,3 milljarða kr. eða um 17,2%. Hrein eign fjárfestingarleiða í séreignadeild var 354,3 milljarðar kr. og hrein eign tryggingadeildar var 178,5 milljarðar kr.

  • Heildariðgjöld voru 35,6 milljarðar og hækkunin nam um 14,5% á milli ára.

  • Metfjöldi sjóðfélaga sem greiddi iðgjöld í sjóðinn á árinu var 27.726 samanborið við 26.401 á fyrra ári. Fjöldi sjóðfélaga sem átti séreign eða réttindi í lok árs var 72.640 og fjölgaði þeim um 2.763 á árinu.

  • Lífeyrisgreiðslur hækkuðu um 16,9% milli ára og námu 9,6 milljörðum kr. Lífeyrisþegar voru 7.341. Greiddir voru 1,7 milljarðar kr. af viðbótarsparnaði inn á höfuðstól lána eða til öflunar íbúðarhúsnæðis.

  • Nýjum lánveitingum fjölgaði á milli ára. Á árinu voru afgreidd 276 lán að fjárhæð 8.144 milljónir. Af nýjum lánum voru 30% óverðtryggð og 70% verðtryggð.

  • Hreinar fjárfestingartekjur sjóðsins námu 54,8 milljörðum. Nafnávöxtun fjárfestingarleiða var á bilinu 8,9% til 15,3% og raunávöxtun á bilinu 4,0% til 10,0%.

  • Kostnaðarhlutfall sjóðsins, þ.e. hlutfall rekstrarkostnaðar og beinna fjárfestingargjalda af meðalstöðu hreinnar eignar lækkaði og var 0,21%, samanborið 0,22% árið 2023.

  • Í árslok 2024 voru eignir umfram áunnar skuldbindingar (áunnin staða) -4,8% og núvirt framtíðariðgjöld umfram núvirtar framtíðarskuldbindingar (framtíðarstaða) voru 2,8%. Heildareignir umfram heildarskuldbindingar (heildarstaða) voru -1,1%. Tryggingafræðileg staða Frjálsa lífeyrissjóðsins er innan lagalegra marka og þarf því ekki að gera breytingar á réttindum sjóðfélaga.

Nánari upplýsingar um ársuppgjörið er að finna í ársreikningnum.

Lykilupplýsingar hafa nú verið uppfærðar á vefsíðu sjóðsins til samræmis við upplýsingar í ársreikningi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira