24.03.2014
Rekstur sjóðsins gekk vel á árinu 2013
Nafnávöxtun fjárfestingarleiða séreignardeildar sjóðsins var á bilinu 4,2-12,6% árið 2013 og 5 ára meðalnafnávöxtun 8,7-12,4%. Nánari upplýsingar um ávöxtun sjóðsins er að finna hér.
Nafnávöxtun tryggingadeildar var 9,2% árið 2013 og 5 ára meðalnafnávöxtun sú sama eða 9,2%. Skuldabréf tryggingadeildar eru gerð upp á kaupkröfu en skuldabréf séreignardeildar eru gerð upp á markaðsvirði.
Tryggingafræðilega staða samtryggingarsjóðs batnaði um 0,5 prósentustig á árinu og eru bæði áunnin staða og heildarstaða jákvæð í fyrsta sinn frá árinu 2007. Í lok árs 2013 var hlutfall eigna 0,8% umfram áfallnar skuldbindingar og 0,2% umfram heildarskuldbindingar.
Hrein eign til greiðslu lífeyris nam um 132 milljörðum í árslok samanborið við 117 milljarða árið 2012 og stækkaði sjóðurinn um 13% á milli ára. Stærð séreignadeildar var um 97 milljarðar og stærð tryggingadeildar um 35 milljarðar.
Iðgjöld sjóðfélaga og launagreiðenda námu 8,9 milljörðum samanborið við 7,7 milljarða árið áður og jukust um 15%. Lágmarksiðgjöld voru 7,5 milljarðar og viðbótariðgjöld 1,4 milljarðar.
Lífeyrisgreiðslur úr séreignadeild og tryggingadeild voru 1,8 milljarðar en 1,6 milljarðar árið áður og hækkuðu um 12%. Fyrirframútgreiðslur á séreignarsparnaði námu 630 milljónum en rúmlega 1 milljarði árið áður og lækkuðu um 40%.
Heildarfjöldi sjóðfélaga í árslok var um 48 þúsund og fjölgaði þeim um 2.057 á árinu eða 4%. Fjöldi sjóðfélaga sem valdi að greiða í sjóðinn var 17.785 og fjölgaði þeim um 449 á árinu eða 3%.