31.03.2015

Rekstur Frjálsa lífeyris­sjóðsins ár­ið 2014

  • Nafnávöxtun fjárfestingarleiða séreignardeildar sjóðsins var á bilinu 1,7%-6,8% árið 2014 og 5 ára meðalnafnávöxtun 6,9%-10,0%. Nánari upplýsingar um ávöxtun sjóðsins er að finna hér.

  • Nafnávöxtun tryggingadeildar var 5,6% árið 2014 og 5 ára meðalnafnávöxtun 8,4%. Skuldabréf tryggingadeildar eru gerð upp á kaupkröfu en skuldabréf séreignardeildar eru gerð upp á markaðsvirði.

  • Tryggingafræðilega staða samtryggingarsjóðs batnaði um 1,5 prósentustig á árinu. Í lok árs 2014 var hlutfall eigna 2,1% umfram áfallnar skuldbindingar og 1,7% umfram heildarskuldbindingar.

  • Hrein eign til greiðslu lífeyris nam um 146 milljörðum í árslok samanborið við 132 milljarða árið 2013 og stækkaði sjóðurinn um 11% á milli ára. Stærð séreignadeildar var um 106 milljarðar og stærð tryggingadeildar um 40 milljarðar.

  • Iðgjöld sjóðfélaga og launagreiðenda námu 9,9 milljörðum samanborið við 8,9 milljarða árið áður og jukust um 12%. Lágmarksiðgjöld voru 8,2 milljarðar og viðbótariðgjöld 1,7 milljarðar.

  • Lífeyrisgreiðslur úr séreignadeild og tryggingadeild voru 2,1 milljarðar en 1,8 milljarðar árið áður og hækkuðu um 18%. Fyrirframútgreiðslur á séreignarsparnaði námu 1 milljarði en 630 milljónum árið áður og hækkuðu um 60%.

  • Heildarfjöldi sjóðfélaga í árslok var um 49.536 og fjölgaði þeim um 1.553 á árinu eða 3%. Fjöldi sjóðfélaga sem valdi að greiða í sjóðinn var 18.991 og fjölgaði þeim um 1.206 á árinu eða 7%.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira