13.11.2018

Rekstrar­samningur Frjálsa lífeyris­sjóðsins við Arion banka hf.

Líkt og fram kom í frétt þann 6. september sl. hefur stjórn Frjálsa haft til skoðunar með hvaða hætti megi auka upplýsingagjöf til sjóðfélaga. Hefur stjórn ákveðið að birta í heild sinni á vef sjóðsins samning Frjálsa við Arion banka hf., um rekstur og eignastýringu. Hægt er lesa samninginn hér.

Bætist þetta við aðra upplýsingagjöf vegna rekstrarfyrirkomulagsins en í ársreikningi sjóðsins eru ítarlegar upplýsingar um rekstrarkostnað, þ.m.t. þau ákvæði rekstrarsamningsins sem lúta að umsýsluþóknun sjóðsins til Arion banka. Upplýsingar um umsýsluþóknunina er einnig að finna á vef sjóðsins.

Er þetta hluti af þeirri vegferð sjóðsins að auka enn frekar gagnsæi gagnvart sjóðfélögum. Frjálsi lífeyrissjóðurinn var t.d. fyrsti lífeyrissjóðurinn sem birti sundurliðun á öllum eignum sjóðsins árið 2009 og eru þær upplýsingar uppfærðar ársfjórðungslega á vefsíðu sjóðsins.

Einnig skal bent á að fimmtudaginn 22. nóvember kl. 17:30 verður haldinn opinn fræðslufundur um Frjálsa lífeyrissjóðinn. Þar mun Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri sjóðsins, segja frá uppbyggingu, ávöxtun og þjónustu við sjóðfélaga. Fjallað verður m.a. um þá þætti sem veita sjóðnum sérstöðu, s.s. séreignarmyndun og erfanleika.

Skráning á fundinn fer fram hér og eru allir velkomnir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira