31.03.2023

Raf­ræn yfirlit og aukn­ar fjár­festingar­heimild­ir er­lendis

Nýlega samþykkti Alþingi breytingar á lífeyrissjóðalögunum sem varða upplýsingagjöf til sjóðfélaga og fjárfestingarheimildir lífeyrissjóðanna.

Yfirlit og upplýsingagjöf

Lífeyrissjóðum er nú heimilt að birta yfirlit og upplýsingar rafrænt.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur fram til þessa sent yfirlit til sjóðfélaga á pappírsformi tvisvar á ári en upplýsingarnar hafa einnig verið aðgengilegar á mínum síðum sjóðsins.

Í kjölfar breytinga lífeyrissjóðslaganna munu yfirlit hér eftir eingöngu verða birt á rafrænan hátt, þar sem rafrænnar auðkenningar er krafist. Á mínum síðum sjóðsins geta sjóðfélagar óskað eftir því að fá yfirlitin send á pappírsformi, þeim að kostnaðarlausu.

Nýir sjóðfélagar

Nýtt ákvæði bætist nú við lögin sem felur í sér að lífeyrissjóðir eigi að veita nýjum sjóðfélögum upplýsingar um helstu réttindi sem ávinnast við greiðslu iðgjalda ásamt upplýsingum um skipulag og stefnu sjóðsins. Frjálsi lífeyrissjóðurinn telur jákvætt að nýir sjóðfélagar séu upplýstir um skipulag og stefnu sjóðsins og hvernig réttindaávinnslu er háttað. Nýir sjóðfélagar geta nálgast upplýsingarnar hér.

Fjárfestingarheimildir

Nokkrar breytingar á fjárfestingarheimildum sjóðanna voru gerðar, ber þar helst að nefna breytingar á heimildum lífeyrissjóða til erlendra fjárfestinga. Lífeyrissjóðum hefur hingað til verið skylt að tryggja að lágmarki 50% af heildareignum samtryggingardeildar í sama gjaldmiðli og skuldbindingar hans. Nú hins vegar eru gerðar breytingar á því ákvæði í skrefum, úr 50% árið 2023 í 35% árið 2036. Með þessum breytingum geta lífeyrissjóðir aukið áhættudreifingu eignasafns enn frekar en Frjálsi hefur lagt áherslu á að fjárfesta í ólíkum eignaflokkum, atvinnugreinum og landsvæðum með það að markmiði að dreifa áhættu.

Hafi sjóðfélagar frekari spurningar er velkomið að hafa samband á frjalsi@frjalsi.is eða í síma 444-6090.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira