19.07.2017

Nýr sjóð­félaga­vef­ur - Mín­ar síður

Mínar síður- sjóðfélagavefur Frjálsa lífeyrissjóðsins hefur nú litið dagsins ljós. Þú getur skráð þig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum. Einnig hefur þú aðgang að Mínum síðum í gegnum Netbanka Arion bankaundir Lífeyrissparnaður.

Á Mínum síðum er meðal annars hægt að fá yfirlit yfir stöðu, gera breytingar á samningi, tilkynna um nýjan launagreiðanda, sækja um útgreiðslur og afþakka pappírsyfirlit auk þess sem verðandi sjóðfélagar geta gert nýja samninga. Aðgerðir eru framkvæmdar í örfáum skrefum og lýkur flestum með rafrænni undirritun. Vakin er athygli á myndbandi með leiðbeiningum um Mínar síður auk nokkurra fróðleiksmola um lífeyrismál almennt.

Verkefnið felur í sér mikinn ávinning og er liður í því að einfalda ferli og auka aðgengi að upplýsingum á þægilegan og fljótlegan hátt.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira