31.10.2013

Ný lög um neyt­endalán

Ný lög um neytendalán hafa verið samþykkt á Alþingi og munu þau taka gildi 1. nóvember nk. Markmið laganna er að auka neytendavernd og tryggja samræmt lagaumhverfi við veitingu neytendalána, auk þess að stuðla að aukinni neytendavitund um lánskjör og gera neytendum hægara um vik að bera saman ólíka lánssamninga. Kröfur um upplýsingaskyldu lánveitanda eru meiri í nýju lögunum. Gerð er krafa um ítarlegar upplýsingar í auglýsingum þar sem fjallað er um vexti eða önnur kjör vegna lánssamnings og gerðar eru kröfur um vissar upplýsingar sem ber að veita fyrir samningsgerð.

Breytingin fyrir lántakendur Frjálsa lífeyrissjóðsins felst í því að vaxtakjör sem áður voru endurskoðuð ársfjórðungslega verða nú endurskoðuð einu sinni á ári, 15. febrúar. Áður en lán er veitt skal ávallt framkvæma lánshæfismat sem m.a. er byggt á viðskiptasögu lántakanda. Greiðslumat þarf að fara fram ef lánssamningur er 2.000.000 kr. eða meira hjá einstaklingi, eða 4.000.000 kr. hjá hjónum eða sambúðarfólki.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira