02.06.2023

Niður­stöður árs­fundar Frjálsa

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins var haldinn í höfuðstöðvum Arion banka 31. maí sl. en sjóðfélagar gátu einnig fylgst með fundinum í gegnum beint streymi og tekið þátt rafrænum atkvæðagreiðslum um tillögur fundarins líkt og sjóðfélagar á fundarstað.

Á fundinum var kynnt skýrsla stjórnar, ársreikningur sjóðsins, niðurstöður tryggingafræðilegrar athugunar og fjárfestingarstefna. Jafnframt voru tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins lagðar fram og samþykktar, auk þess sem tillögur um stjórnarlaun og endurskoðanda voru samþykktar.

Kosning í aðalstjórn, sem stóð yfir í viku, fór eingöngu fram með rafrænum hætti og lauk kl. 17:00 á ársfundardegi.

Kosning stjórnarmanna

Þrjú framboð bárust í tvö laus sæti í aðalstjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í ljósi samsetningar þeirra stjórnarmanna sem ljóst var fyrir ársfundinn að myndu sitja áfram í stjórn var skylt að kjósa einn frambjóðanda af hvoru kyni eða tvær konur. Þar sem aðeins eitt framboð barst frá konu, Önnu Sigríði Halldórsdóttur, þá var hún sjálfkjörin.

Frambjóðendur sem hlutu kosningu í aðalstjórn til næstu þriggja ára

  • Anna Sigríður Halldórsdóttir

  • Björn Ingi Victorsson

Eitt framboð barst í varastjórn, frá Lilju Bjarnadóttur og var hún því sjálfkjörin til næstu þriggja ára.

Gögn ársfundar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira