27.04.2012

Niður­staða árs­fundar Frjálsa lífeyris­sjóðsins

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins var haldinn 25. apríl sl. Á fundinum var m.a. kynntur ársreikningur sjóðsins fyrir árið 2011 þar sem fram kom að fjárfestingarleiðir sjóðsins hefðu skilað 9,5%-14,7% nafnávöxtun en tryggingadeildin 9,0% nafnávöxtun. Hrein eign sjóðsins var um 99,7 milljarðar kr. í lok árs og stækkaði sjóðurinn um 14,5% á árinu.

Sjálfkjörið var í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins

Ásgeir Thoroddsen og Bjarnar Ingimarsson voru sjálfkjörnir í stjórn sjóðsins til næstu tveggja ára, þar sem aðeins tvö framboð bárust. Selma Svavarsdóttir var einnig sjálfkjörin sem varamaður til eins árs.

Tillögur um breytingar á samþykktum

Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum sjóðsins voru samþykktar samhljóða.

Stjórnarlaun

Samþykkt var að mánaðarlaun stjórnarmanna yrðu 97.500 kr. og tvöföld til stjórnarformanns.

Deloitte endurskoðandi sjóðsins

Samþykkt var tillaga stjórnar um að Deloitte yrði endurskoðandi sjóðsins.

Fundargerð ársfundar verður birt á vefnum innan fárra daga.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira