09.06.2020
Móttaka lífeyrisráðgjafa opnar að nýju
Frá og með 9. júní verður að nýju hægt að bóka fundi vegna útgreiðsluráðgjafar og almennrar lífeyrisþjónustu í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.
Vegna lána verður hægt að bóka fundi kl. 9-16 alla virka daga hjá fjármálaráðgjöfum Arion banka á Bíldshöfða 20, Borgartúni 18 og nú einnig á Smáratorgi 3. Eingöngu verður hægt að taka á móti þeim sjóðfélögum sem eiga fyrirframbókaða fundi. Hérmá reikna lán, skoða lánareglur og framkvæma rafrænt greiðslumat.
Sjóðfélagar eru hvattir til að skrá erindi sitt hérbæði vegna lánamála og lífeyrismála. Í kjölfarið verður haft samband við sjóðfélaga og mál hans leyst í gegnum síma eða rafrænar leiðir eftir atvikum. Ef tilefni er til verður bókaður fundur með ráðgjafa.