17.03.2020

Lífeyris­þjónusta að­lög­uð breytt­um að­stæð­um

Frjálsi lífeyrissjóðurinn leggur áherslu á að tryggja öryggi sjóðfélaga og starfsfólks og sporna við frekari útbreiðslu Corona veirunnar. Sjóðurinn er vel í stakk búinn til að tryggja sjóðfélögum góða þjónustu við breyttar aðstæður.

  • Sjóðfélagar geta framkvæmt flestar aðgerðir á Mínum síðum sem eru aðgengilegar á frjalsi.is eða í gegnum Netbanka Arion banka.

  • Tímabundið er móttaka sjóðfélaga í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19 lokuð, en lífeyrisráðgjafar geta leyst úr flestum fyrirspurnum í síma 444 6090 eða tölvupósti á frjalsi@frjalsi.is. Einfaldari fyrirspurnum er svarað í gegnum netspjall á frjalsi.is. Ef erfitt reynist að ná inn í gegnum síma má óska eftir símtali með því að senda póst á frjalsi@frjalsi.is.

  • Þá eru sjóðfélagar sem þurfa á lánaráðgjöf að halda hvattir til að senda fyrirspurn á frjalsi@frjalsi.is fremur en að leita í útibú, þar sem opnun útibúa á höfuðborgarsvæðinu og þjónusta innan þeirra hefur einnig verið takmörkuð tímabundið, sjá frétt á vefsíðu Arion banka.

Starfsfólk óskar sjóðfélögum velfarnaðar og leggur áherslu á að afgreiða öll erindi eins skjótt og kostur er, en aðstæður gætu þó leitt til þess að t.d. umsóknir um lán og annað taki lengri tíma en ella.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira