03.10.2025

Lífeyris­sjóðurinn minnir á mik­il­vægi reglu­legr­ar eftir­fylgni með ið­gjöldum

Við viljum minna sjóðfélaga á að skoða reglulega hvort lífeyrisiðgjöld séu í samræmi við launaseðla þar sem ábyrgðin er hjá sjóðfélaganum sjálfum að upplýsa lífeyrissjóð um vangoldin iðgjöld. Það er því ávallt gott að venja sig á þetta en það er sérstaklega mikilvægt ef vinnuveitandi á í rekstrarerfiðleikum eða hættir starfsemi en einnig þegar launþega er sagt upp störfum eða hættir.

Lífeyrissjóðir gera kröfu í Ábyrgðasjóð launa um vangoldin lífeyrisiðgjöld, líkt og fjallað er um í lögum um ábyrgðasjóðinn nr. 88/2003. Ábyrgðasjóður launa ábyrgist lífeyrisiðgjöld sem fallið hafa í gjalddaga eða réttur hefur áunnist á síðustu 18 mánuðum fyrir frestdag eða úrskurðardag um gjaldþrotskipti. Ábyrgðin takmarkast við allt að 15,5% skylduiðgjald og 4% viðbótariðgjald. Sjóðurinn mun því sjá um innheimtuferli lífeyrisiðgjalda en aðeins ef lífeyrissjóðurinn hefur fengið upplýsingar um vangoldin iðgjöld.

Viljum því hvetja sjóðfélaga til að bera saman launaseðla og greidd iðgjöld á lífeyrisyfirlitum í Arion appinu eða á Mínum síðum. Ef upp kemur misræmi skulu sjóðfélagar hafa samband við lífeyrissjóðinn sem allra fyrst til þess að tilkynna um vangoldin iðgjöld.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira