27.02.2014

Lífeyris­mál á manna­máli - Fræðslufund­ur

Fræðslufundur Arion banka um útgreiðslur lífeyrissparnaðar sem haldinn var í höfuðstöðvum bankans í vikunni heppnaðist vel. Fyrirlesari var Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins. Meðal atriða sem farið var yfir á fundinum voru reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar, samspil útgreiðslna úr lífeyrissparnaði og frá Tryggingastofnun og hvað þarf að hafa í huga áður en ákvörðun um útgreiðslur er tekin. Auk þess var sagt frá Lífeyrisgáttinni sem er nýjung á íslenskum lífeyrismarkaði og aðgerðum ríkisstjórnarinnar hvað varðar möguleika á greiðslu skattfrjáls viðbótarlífeyrissparnaðar inn á húsnæðislán eða húsnæðissparnaðarreikninga.

Næsti fræðslufundur um lífeyrismál verður haldinn í Borgartúni 19 kl. 17:30 þann 11. mars nk. og ber hann yfirskriftina Lífeyrismál á mannamáli.

Skráning hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira