29.10.2013

Lífeyris­g­átt­in - op­ið hús 5. nóv­em­ber

Þér er boðið á opið hús kl. 16-19 þriðjudaginn 5. nóvember nk. í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, Reykjavík.

Lífeyrisgáttin verður kynnt en hún opnar þér sýn á öll lífeyrisréttindi sem þú hefur áunnið þér á starfsævinni. Þú getur sótt um aðgang á staðnum, en auk þess verða ráðgjafar okkar reiðubúnir til að svara þeim spurningum sem brenna á þér varðandi lífeyrismál. Nánar um Lífeyrisgáttina hér.

Léttar kaffiveitingar í boði. Sjáumst!

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira