14.12.2017

Leið­rétt­ing á rang­færslum í blaða­grein

Í grein eftir Hróbjart Jónatansson hæstaréttarlögmann, sem birtist í Morgunblaðinu 11. desember 2017 undir yfirskriftinni Enn af “frjálsa” lífeyrissjóðnum, eru nokkrar rangfærslur sem rétt er að leiðrétta:

  1. Ásgeir Thoroddsen hefur verið kjörinn í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins á ársfundi hans frá því árið 2009. Hann er því ekki skipaður í stjórnina af Arion banka eins og fullyrt er í greininni.

  2. Frjálsi lífeyrissjóðurinn á viðskipti með einstök verðbréf við aðrar miðlanir en Arion banka og hefur hlutdeild þeirra í slíkum viðskiptum verið um 70% á árinu 2017. Þá hefur Frjálsi lífeyrissjóðurinn einnig fjárfest í fjölmörgum sjóðum og verkefnum með rekstrarfélögum og öðrum fjármálafyrirtækjum sem ekki tengjast Arion banka. Það er því rangt að halda því fram að “samstarf sjóðsins við aðrar fjármálastofnanir en Arion banka”, sé útilokað eins og haldið er fram í greininni. Sjóðnum er á engan hátt “varnað” að eiga viðskipti við önnur fjármálafyrirtæki en Arion banka, eins og fullyrt er af greinarhöfundi. Á vef sjóðsins er birt sundurliðun yfir allar fjárfestingar sjóðsinsog eru þær uppfærðar ársfjórðungslega.

  3. Rekstrarsamningur milli Frjálsa lífeyrissjóðsins og Arion banka er ekkert einsdæmi eins og látið er að liggja í umræddri grein. Tveir lífeyrissjóðir útvista rekstri og eignastýringu til Landsbankans og fjórir til Arion banka.

  4. Í greininni er fjallað um þau verðlaun sem Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur unnið í IPE verðlaunasamkeppni lífeyrissjóða og fullyrt að slíkar vegtyllur megi „kaupa fyrir hæfilegt verð og eru ekki gæðastimpill sem mark er á takandi“. Gildi lífeyrissjóður og Almenni lífeyrissjóðurinn og fjölmargir erlendir lífeyrissjóðir geta vitnað um það með Frjálsa lífeyrissjóðnum að verðlaun á þeim vettvangi eru ekki keypt. Um 100 dómarar sjá um að finna sigurvegara í fjölmörgum verðlaunaflokkum, bæði landaverðlaun og þemaverðlaun. Nánari upplýsingar um IPE verðlaunin er að finna á vefsíðu IPE.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira