08.11.2019

Lána­reglum breytt

Stjórn Frjálsa hefur ákveðið að breyta lánareglum sjóðsins til að gefa fleiri sjóðfélögum kost á að taka lán hjá sjóðnum. Nýjar lánareglur taka gildi frá og með 8. nóvember og eru helstu breytingar eftirfarandi:

  • Sjóðfélagar geta sótt um lán sem hafa annan tilgang en að fjármagna íbúðarkaup, t.d. lán til að endurfjármagna önnur lán sjóðfélaga. Þau lánsform sem verða í boði fyrir slík lán eru verðtryggð lán með föstum vöxtum og óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára í senn. Hámarksveðhlutfall slíkra lána er 70% af fasteignamati.

  • Áfram verða þrjú lánsform í boði til að fjármagna kaup eða byggingu á íbúðarhúsnæði, þ.e. þau tvö sem nefnd voru hér að ofan ásamt verðtryggðu láni með breytilegum vöxtum. Hámarksveðhlutfall lána til að fjármagna kaup á íbúðarhúsnæði er óbreytt, 70% af kaupvirði.

  • Lánsréttur miðast við virka sjóðfélaga sem hafa greitt sl. 6 mánuði til sjóðsins eða þá sem hafa greitt til sjóðsins í samtals 36 mánuði.

Nánari upplýsingar um lán og lánareglur sjóðsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira